Tunnudreifing hafin í Reykjavík

Sorphirða

Tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
Tvískipt sorptunna

Tunnudreifing samkvæmt nýju flokkunarkerfi sorphirðu er hafin í Reykjavík. Nú stendur yfir dreifing í Grafarholti og Úlfarsárdal. Skylt varð að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili með lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi í janúar 2023.

Reykjavíkurborg tekur upp nýtt og samræmt flokkunarkerfi sorphirðu í samvinnu við nágrannasveitarfélög. Þetta er viðamikið umhverfismál en með réttri flokkun er hægt að minnka sóun og endurnýta verðmæti í stað þess að þeim sé hent.

Íbúar þurfa ekki að grípa til neinna aðgerða hvað varðar tunnuskipti. Tunnudreifing er hafin og lýkur breytingunum í september.

Dreifingaráætlun á nýjum tunnum eftir hverfum

  • KjalarnesGrafarvogurGrafarholt og Úlfarsárdalur fá nýjar tunnur í maí.
  • Árbær og Breiðholt í júní.
  • Háaleiti og Bústaðir í júní og júlí.
  • Laugardalur í júlí.
  • Miðborg og Hlíðar í ágúst.
  • Vesturbær í september.

Tunnudreifingu á Kjalarnesi er lokið og nú stendur yfir dreifing í Grafarholti og Úlfarsárdal.  Eftir það verður haldið í Grafarvoginn og svo koll af kolli samkvæmt plani.

Öll heimili fá jafnframt körfu og bréfpoka undir matarleifar sem dreift er samhliða tunnuskiptunum.

Markmið að fjölga tunnum eins lítið og hægt er

Eins og fyrr segir þurfa allir að flokka í fjóra flokka við heimili. Í nýju flokkunarkerfi er tunnum úthlutað samkvæmt gerð húsnæðis og fjölda íbúa. Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er. Tunnum fjölgar þar sem ekki voru endurvinnsluílát fyrir. Að lágmarki er hægt að hafa tvær tvískiptar tunnur í sérbýli með þremur eða færri íbúum.

Ef fleiri spurningar vakna varðandi nýtt flokkunarkerfi er hægt að hafa samband við þjónustuver Reykjavíkurborgar í gegnum upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111.