Fyrsti vetrardagur er 26. október en það táknar meðal annars að tími sumardekkjanna sé liðinn og því nauðsynlegt að setja góð vetrardekk undir farartækin.
Nagladekk eru bönnuð í Reykjavík frá 15. aprí til 1. nóvember en Reykjavíkurborg mælir eindregið með vönduðum vetrardekkjum fremur en nagladekkjum undir bílana í borginni.
Nagladekk valda svifryki þegar þau spæna upp malbik á götum, þau auka hávaða og slíta götum hraðar en æskilegt er. Reykjavíkurborg leggur áherslu á góða vetrarþjónustu gatna - en þegar snjór fellur í Reykjavík eða hálka myndast er unnið samkvæmt viðbragðsáætlun um vetrarþjónustu. Aðstæður eru vaktaðar reglubundið og mannskapur kallaður út eftir þörfum.
Öruggast er að keyra ævinlega í samræmi við aðstæður. Samkvæmt lögum bera ökumenn ábyrgð á því að aka um á dekkjum sem eru í samræmi við aðstæður hverju sinni, óháð árstíðum.
Gleðilegan vetur og góða ferð hvert sem henni er heitið.
Tengill
Ráðleggingar FÍB um vetrardekk, akstur og umhirðu