Tæplega þriðjungur á negldum dekkjum
Hlutfall nagladekkja í Reykjavík er svipað og í fyrra samkvæmt talningu sem gerð var um miðjan nóvembermánuð.
Tæplega þriðjungur reyndist vera á nöglum. Reykjavíkurborg mælir með góðum vetrardekkjum til að draga úr mengun, hávaða og sliti á götum.
Hlutfallið milli negldra og ónegldra dekkja undir bifreiðum í Reykjavík er reiknað út sex sinnum yfir veturinn. Talning fór fram 13. nóvember. Hlutfallið skiptist þannig að 29% ökutækja voru á negldum dekkjum og 71% voru á öðrum dekkjum.
Hlutfall negldra dekkja er svipað og í fyrra þegar það var 28,2%. Fyrir tveimur árum (2022) var hlutfallið aðeins hærra, eða 33.9% og fyrir þremur árum (2021) var það töluvert hærra eða 39,6%, en fyrir fjórum árum (2020) var það sambærilegt eða 29,5%. Veturinn hefur verið mildur í Reykjavík fram að þessu og bíleigendur hafa verið hvattir til að velja góð vetrardekk undir bílana.
Góð vetrardekk skora hátt í vetrarkönnun
Samkvæmt vetrardekkjakönnun FÍB eru ákveðin ónegld dekk sem skora hærra en negld dekk. Má þar nefna að í flokki ónegldra dekkja voru fjórir dekkjaframleiðendur sem röðuðu sér nokkuð afgerandi í fjögur efstu sætin. Goodyear Ultragrip Ice 3 fær 92 stig í efsta sætinu. Continental Viking Contact 8 er í öðru sæti með 90 stig og Nokian Hakkapelitta R5 með 87 stig í þriðja sætinu. Þar á eftir kemur Michelin X-Ice Snow með 83 stig.