Svifryksmengun um áramótin

Heilbrigðiseftirlit

""

Búist er við svifryksmengun fyrstu klukkustundir ársins 2020 vegna mengunar frá flugeldum en einnig að styrkurinn falli hratt þegar líða tekur á nýársnótt.

Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að sýna aðgát og huga að börnum ásamt því að ganga rétt frá flugeldarusli. Hægt er að draga úr fjölda flugelda með því að kaupa rótarskot Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Rótarskotið er ágætur valkostur fyrir þá sem vilja styrkja starf björgunarsveitanna án þess að kaupa flugelda. Fyrir rótarskotin gróðursetur skógræktarfélagið trjáplöntur um land allt næsta sumar en tré stuðla að betri loftgæðum og draga úr gróðarhúsaáhrifum. 

Hávaði vegna flugelda verður oft mikill, sérstaklega frá stórum skotkökum og því eru gæludýreigendur í borginni hvattir til að huga vel að dýrum sínum. Best er að halda köttum inni dagana í kringum áramót og hafa hunda í ól þegar þeim er hleypt út m.a.s. þegar það er bara út í garð. Frekari upplýsingar um dýrahald og flugelda.

Veður

Samkvæmt veðurspá verður suðvestanátt um 5-10 m/s, um 4 stiga hiti og skúrir á miðnætti þegar nýtt ár gengur í garð. Veðurþættir eins og vindur og úrkoma hafa áhrif á mengun en miklar líkur eru á úrkomu fyrsta dag ársins.

Svifryk

Miðað við undanfarin ár gæti 1. janúar 2020 orðið fyrsti svifryksdagur ársins vegna mengunar frá skoteldum. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á loftgæði.is 

Fólk með viðkvæm öndunarfæri, hjarta- og æðasjúkdóma og börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir svifryki. Æskilegast er fyrir þennan hóp að vera innandyra þegar mest gengur á í kringum um miðnættið og loka gluggum.

Meginatriði er að fara gætilega um áramót, passa börnin, nota hanska og hlífðargleraugu og njóta stundarinnar á öruggan hátt.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með brennunum ásamt Lögreglunni og Slökkviliðinu á Höfðuborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur jafnframt eftirlit með hreinsun á brennustað.

Áramótabrennur

Skotsvæði um áramót

Sorphirða um áramót