Áramótabrennur á 10 stöðum

Umhverfi Menning og listir

""

Áramótabrennur verða á 10 stöðum í Reykjavík eins og undanfarin ár. 

Eldur verður borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld á öllum stöðum með tveimur undantekningum.  Á Úlfarsfelli er tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30. 

Brennurnar  eru á eftirtöldum  stöðum - skoða á korti:

  1. Við Ægisíðu, lítil brenna.
  2. Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48 - 52,  lítil brenna (tendrað kl. 21.00, eftir blysför sem hefst kl. 20.30).
  3. Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.
  4. Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18,  lítil brenna.
  5. Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi, stór brenna.
  6. Við Suðurfell, lítil brenna.
  7. Við Rauðavatn að norðanverðu, lítil brenna.
  8. Gufunes við Gufunesbæ, stór brenna.
  9. Við Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.
  10. Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna (tendrað kl. 15.00)

Tengt efni: