Samstarf tilraunaborga og tengiborga um kolefnishlutleysi

Atvinnumál Loftslagsmál

Strætó - samgöngur

Reykjavík er meðal fjörutíu evrópskra borga sem verða tengiborgir (Twin City) í sóknaráætlun NetZeroCities samstarfsins í átt að kolefnishlutleysi og snjallvæðingu (Carbon-neutral and smart cities). Verkefninu var formlega hleypt af stokkunum í lok september 2023.

Reykjavík verður tengiborg Lahti í Finnlandi en borgirnar munu eiga með sér samstarf í 20 mánuði um þekkingarmiðlun og þróun lausna í átt að sjálfbærum samgöngum og öflugum aðferðum til að styðja sem best við breytta samgöngumáta íbúanna.

Tilraunaborgir og tengiborgir eru paraðar saman út frá sameiginlegum áskorunum og markmiðum um minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda og aðgerða til að takast á við loftslagsvandann, í þessu tilviki með sérstakri áherslu á þróun virkra samgangna. Borgirnar fá sérstakan stuðning frá NetZeroCities samstarfinu sem skipuleggur samskipta- og samráðsfundi borganna á milli.

Fyrir Reykjavíkurborg er þetta tengiborgasamstarf einkum mikilvægt til að fylgja eftir samgöngustefnu borgarinnar, sérstaklega að sinna betur og aðlaga stefnu borgarinnar að raunverulegum samgönguþörfum íbúa höfuðborgarsvæðisins og breyttra samgönguhátta.

Tengt efni: