Saga Steinunnar

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir með bæklinginn sinn.

Útgáfa bæklings um sögu Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur, fordóma og ofbeldi gegn fötluðu fólki, er hluti af verkefninu Saman gegn ofbeldi sem er samstarfsverkefni Borgarinnar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Kvennaathvarfsins og Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Steinunn segir á einlægan og persónulegan hátt frá reynslu sinni af fordómum og ofbeldi um leið og aðrir sem upplifa að á sér sé brotið eru hvattir til að skila skömminni og leita aðstoðar. „Það sem skiptir miklu máli er að þetta er ekki okkar skömm heldur þeirra sem gera svona lagað. Ég get sagt það að ég var með skömm í hjartanu í mörg ár og ég vanmat mig sjálfa mig og reif mig niður.“

Rannsóknir hafa sýnt að fatlað fólk er í meiri hættu á að vera beitt ofbeldi en ófatlað fólk og eru fatlaðar konur og fötluð börn einna mest útsett fyrir ofbeldi í samfélaginu.

Með reynslusögu Steinunnar Ásu fær lesandi innsýn í reynsluheim fatlaðrar konu og þá fordóma og ofbeldi í samfélaginu sem fatlað fólk verður fyrir. Hún skrifar; „Fólk notar stundum orð eins og þroskaheftur, vangefinn og fáviti til að niðurlægja. Þessi orð eru úrelt og eiga að vera það. Ég meina það í alvöru. Þessi orð særa og meiða og ég hef oft verið kölluð þetta. Ég segi oft við foreldra að kenna börnum sínum að segja ekki svona orð lesandi góður“.

Steinunn bendir á fordóma í samfélaginu og nauðsyn þess að fatlað fólk fái að taka þátt í atvinnulífinu, fái aukna fræðslu og verði fullgildir meðlimir samfélagsins. Að lokum er bent á ýmsar leiðir fyrir brotaþola til að fá aðstoð.

Bæklingurinn sem gefin er út af mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar er bæði á íslensku og ensku. Honum verður fylgt eftir með fræðslu næsta haust. Öllum er velkomið að hafa samband, mannrettindi@reykjavik.is, ef þið viljið fá fræðslu eða eintök send á ykkar starfsstað.