Lokaáfangi samkeppni um Gufunesbryggju og Sævarhöfða

Skipulagsmál Stjórnsýsla

Séð yfir Gufensbryggju og Gufunes

Fimm teymi hafa verið valin til áframhaldandi vinnu í alþjóðlegu samkeppninni Reinventing Cities, en Reykjavík bauð fram tvær þróunarlóðir til samkeppninnar, Gufunesbryggju og Sævarhöfða 31. Gert er ráð fyrir að tillögum verði skilað í febrúar 2021. Alls sendu sjö  teymi áhugayfirlýsingu í fyrri hluta keppninnar.

Keppnin er haldin á vegum samtakanna C40, en þar sameinast borgir sem sækja fram í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Keppnin snýst um að þverfagleg teymi móti framtíðarsýn fyrir lóðirnar með það að meginmarkmiði að þar rísi fyrirmyndarbyggingar í sjálfbærni. Reykjavíkurborg er þátttakandi í þessu samstarfi nær hundrað stórborga gegn loftslagsbreytingum og er samkeppnin liður í baráttunni gegn þeim. 

Gufunesbryggja og Sævarhöfði 31 eru þær lóðir sem Reykjavíkurborg bauð fram að þessu sinni, en í fyrri samkeppni árið 2018 voru það lóðir við Lágmúla, Frakkastíg og á Ártúnshöfða. Lóðirnar að þessu sinni voru kynntar til leiks í byrjun mars á þessu ári með opnum kynningarfundi.

Sævarhöfði 31 með stórum iðnaðarmannvirkjum  

Tvö teymi voru valin til að vinna að tillögum fyrir Sævarhöfða 31, en það er nærri 3 þúsund fermetra þróunarlóð.  Stórir turnar eða gömul sementssíló, einkenna svæðið. Mögulegt er að þessir  40 metra háu mannvirki fái nýtt hlutverk að lokinni samkeppninni.

Teymin sem nú fá tækifæri til að koma með tillögur eru:

The circular District
Teymisstjórn: VSÓ Ráðgjöf ehf.
Arkitektar: Reiulf Ramstad Arkitekter AS
Umhverfisráðgjafi: VSÓ Ráðgjöf ehf, GXN Copenhagen

Smart Food Campus
Teymisstjórn: Krónan / Festi hf.
Arkitektar: RCDP Arkitektar ehf
Umhverfisráðgjafi: Verkís ehf.

Gufunesbryggja á svæði skapandi lista    

Þróunarsvæðið í Gufunesi sem um ræðir  er nærri 5 þús. fermetrar og í keppnislýsingu var áréttað að svæðið í heild verði segull skapandi lista og að á keppnissvæðinu sjálfu sem er við ströndina séu mikil tækifæri fyrir heilsutengda starfsemi.Þrjú teymi halda áfram tillögugerð fyrir lóðina við Gufunesbryggju og bryggjuna sjálfa. Þessi teymi eru:

Hringhreyfing
Teymisstjórn: Verkís ehf.  
Arkitektar: StudioDA_DO, Gláma Kím Arkitektar
Umhverfisráðgjafi: Max Fordham LLP

Þorpið Vistfélag
Teymisstjórn: Þorpið Vistfélag
Arkitektar: Yrki Architects
Umhverfisráðgjafi: Environice

EYJAKLASI
Teymisstjórn: UNDRA
Arkitektar: UNDRA. Mareld landskapsarkitekter
Umhverfisráðgjafi: EFLA consulting engineers

Dómnefnd    

Dómnefndin var skipuð 7 manns og í henni eiga sæti fyrir hönd C40 Reinventing cities þær Costanza De Stefani, C40 Zero Carbon Development og Héléne Chartier, C40, Head of Zero Carbon development,  en fyrir hönd Reykjavíkurborgar Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður, Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður, Guðlaug Erna Jónsdóttir, arkitekt, Ingvar Jón Bates Gíslason, arkitekt og Óli Örn Eiríksson deildarstjóri atvinnuþróunar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

Tengt efni: