Hver vill starfrækja parísarhjól í Reykjavík?
Reykjavíkurborg auglýsir eftir samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn og er það hugsað sem spennandi viðbót við fjölbreytt borgarlíf. Áhugasamir aðilar hafa frest til 22. mars að senda inn tillögur á netfangið athafnaborgin@reykjavik.is.
Verkefnið á rætur sínar í hugmyndavinnu innan borgarinnar um haftengda upplifun, en sá starfshópur setti fram fjölmargar hugmyndir um hvernig bæta mætti lífsgæði borgarbúa og lýðheilsu í skýrslu sem kom út síðasta haust.
Parísarhjólið verður opið yfir sumartímann. Í auglýsingu borgarinnar er gert ráð fyrir að mögulegur rekstraraðili muni standa allan straum af kostnaði við uppsetningu og rekstur parísarhjóls, en framlag borgarinnar til samstarfsins verði afnot af lóð Faxaflóahafna í fyrirfram ákveðinn tíma. Svæðið sem borgin gæti lagt til undir verkefnið er 725 fermetrar og þar ætti að vera hægt að koma fyrir 20 metra löngum vagni með parísarhjóli. Hæðartakmörk eru 30 metrar. Þá er í auglýsingu gerðar kröfur um parísarhjólið og annar búnaður þoli íslenskar aðstæður þ.m.t. vindálag og jarðhræringar.
Senda skal tillögur á netfangið athafnaborgin@reykjavik.is
Tengt efni:
- Skoða auglýsingu á vef: Samstarf um Parísarhjól
- Frétt (8. september 2023): Parísarhjól og bryggjuböð meðal hugmynda um haftengda upplifun