Samstarf um parísarhjól

Reykjavíkurborg óskar eftir samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Parísarhjól verður spennandi viðbót við fjölbreytt borgarlíf. 

Parísarhjól í Reykjavíkurhöfn - unnin mynd

Verkefnið kom upp í skýrslu um tækifæri fyrir haftengda upplifun í Reykjavík og var samþykkt að vinna það áfram. Mögulegur rekstraraðili mun standa allan straum af uppsetningu og rekstri parísarhjóls, en framlag borgarinnar til samstarfsins yrðu afnot af lóð Faxaflóahafna í fyrirfram ákveðinn tíma.  

Frestur til að skila inn tillögum að samstarfi er til 22. mars kl 14:00. 

Nánari upplýsingar

Hæðartakmörkun: Vegna staðsetningar sem er beint undir fluglínu fyrir flugbraut 01-19 eru 30 m hæðartakmarkanir á mögulegu parísarhjóli. 

Stærð svæðis sem borgin gæti lagt til undir verkefnið er 725 fermetrar. Á svæðinu ætti að vera hægt að koma fyrir 20 metra löngum vagni með Parísarhjóli. 

Árstíð: Um sumarafþreyingu væri að ræða, tímabilið er maí – september. 

Öryggiskröfur: Rekstraraðili þarf að skila inn gögnum um að hjólið og búnaðurinn þoli íslenskar aðstæður þ.m.t. vindálag og jarðhræringar. Frekari útlistun á kröfum varðandi öxulþyngd vagnsins má finna í athugun Verkís um parísarhjól á Miðbakka. 

Gögn