Hver verður Reykvíkingur ársins 2024?
![Reykvíkingur ársins 2023 við veiðar í Elliðaánum](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/2024-05/23062001_rvkars_118_custom.jpg?h=82f92a78&itok=hUBE7GLp)
Ert þú með ábendingu um hver verðskuldar að verða Reykvíkingur ársins? Borgarstjórinn í Reykjavík óskar í fjórtánda sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar í borgarsamfélaginu.
Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa verið til fyrirmyndar eða sýnt af sér háttsemi eða atferli sem kemur Reykjavík og íbúum borgarinnar til góða á einhvern hátt.
Þetta gæti verið einhver sem hefur haft jákvæð áhrif á borgarlífið, sýnt nærumhverfinu alúð eða gert mikið gagn í borginni á undanförnum árum með einhverjum hætti.
Hann, hún eða hán sem hlýtur viðurkenningu sem Reykvíkingur ársins opnar Elliðaárnar með því að renna fyrir laxi í ánni ásamt borgarstjóra, í boði Stangveiðifélags Reykjavíkur sem hefur árnar á leigu.
![Mikael Marinó ásamt nemendum sínum sem luku námi í stangveiði á vordögum 2023](/sites/default/files/styles/original_medium/public/2024-05/2023-06-20-13-51-23-599_1_custom.jpg?itok=7WcjL2ID)
Reykvíkingur ársins í fyrra var Mikael Marinó Rivera grunnskólakennari í Rimaskóla í Grafarvogi fyrir að virkja nemendur sem finna ekki sitt áhugasvið í hefðbundnum námsgreinum í skólanum. Hann bauð meðal annars upp á valáfanga í fluguveiði, Lord of the Rings, þar sem kafað er dýpra í hugarheim Tolkiens, hlaðvarp þar sem nemendur læra að gera hlaðvörp, allt frá handritagerð til birtingar á efni og Ökuskóla Mikaels, sem er undirbúningur fyrir hefðbundið ökunám.
Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is.
Frestur til að senda inn tilnefningar rennur út mánudaginn 10. júní 2024.
Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.