Reykvíkingur ársins Mikael Marinó Rivera opnaði Elliðaárnar í morgun

Reykvíkingur ársins 2023 Mikael Marinó Rivera rennir fyrir laxi í Elliðaánum í morgun. Róbert Reynisson
Reykvíkingur ársins 2023 Mikael Marinó Rivera rennir fyrir laxi í Elliðaánum í morgun.

Mikael Marinó Rivera, grunnskólakennari í Rimaskóla í Grafarvogi er Reykvíkingur ársins 2023.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tilkynnti valið í morgun við opnun Elliðaánna en þetta er í þrettánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.

Fer aðrar leiðir til að virkja nemendur

Mikael fer aðrar leiðir í að virkja nemendur sem finna ekki sitt áhugasvið í hefðbundnum námsgreinum í skólanum. Hann hefur meðal annars boðið upp á valáfanga í fluguveiði í Rimaskóla og kynnt fluguveiði fyrir unglingum af eigin frumkvæði þar sem hann blandar saman kennslu í náttúru- og líffræði við kynningu á fluguveiði sem íþrótt og góðu útivistartækifæri.

Nemendur fá fræðslu um stangveiði, fara í flugukastkennslu, fá kennslu á veiðibúnað, læra um og prófa fluguhnýtingar, fá fræðslu um lífríki í ám og vötnum og fara í veiðiferðir. Markmiðið með veiðiáfanganum er að blanda saman áhuga á stangveiði og kennslu í náttúru- og líffræði, íþróttum og listum. Mikael hefur gert þetta af eigin frumkvæði og er það liður í að kynna fyrir ungu fólki í hverju fluguveiði felst og kenna þeim að njóta í leiðinni náttúrunnar við Elliðaárnar sem er nánast við túnfótinn hjá Rimaskóla. Þessa viku er Mikael einmitt með hóp af unglingum úr Rimaskóla í veiðiferð í Elliðaánum og voru þau mætt í morgun til að fagna með kennara sínum.

Auk stangveiði hefur hann boðið upp á óvenjulegar valgreinar en þeirra á meðal eru: Ökuskóli Mikaels, sem er undirbúningur fyrir hefðbundið ökunám, Lord of the Rings, þar sem kafað er dýpra í hugarheim Tolkiens og hlaðvarp þar sem nemendur læra að gera hlaðvörp, allt frá handritagerð til birtingar á efni. Þá hefur Mikael einnig boðið upp á valáfanga um Evrópuknattspyrnuna þar sem farið er yfir leiki vikunnar í stærstu deildum Evrópu, farið í gamla tölvuleiki og borðspil.

Hann hefur unnið þrekvirki við að efla áhugasvið nemenda sem eru komnir með skólaleiða. Mikael nálgast nemendur á fjölbreyttan hátt.

Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla

Hikar ekki við að koma með að koma með gleðina inn í skólastarfið

Skólastjóri Rimaskóla Þóranna Rósa Ólafsdóttir segir Mikael efla góðan starfsanda, hann sé úrræðagóður og hiki ekki við að koma með gleðina inn í skólastarfið.“Hann hefur unnið þrekvirki við að efla áhugasvið nemenda sem eru komnir með skólaleiða. Mikael nálgast nemendur á fjölbreyttan hátt."

Reykvíkingur ársins var að vonum ánægður með titilinn. „Útnefningin kom mér mjög á óvart, en þetta er virkilega ánægjulegt. Það er gaman að fá viðurkenningu fyrir kennsluna, og ég hlakka til að halda áfram að vinna með nemendum Rimaskóla“.

Reykvíkingur ársins opnaði svo Elliðaárnar í boði borgarstjórans í Reykjavík og Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft umsjón með ánum í 83 ár. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ræddi við Mikael um kennarastarfið og valgreinarnar sem hann hefur boðið upp á. Því næst var boðið upp á hressingu í veiðihúsinu við ána en að því loknu héldu Mikael og ungmennin í veiði í Elliðaánum.