Götulokanir á Menningarnótt 2024

Mannlíf Menning og listir

Mannfjöldi framan við stóra sviðið á Menningarnótt 2023, myrkur, horft á fólkið upp eftir Arnarhóli

Menningarnótt verður haldin 24. ágúst 2024. Undirbúningur er vel á veg kominn og veisla í vændum fyrir gesti og gangandi.

Á Menningarnótt er miðborgin ein allsherjar göngugata og verður lokað fyrir umferð bifreiða frá kl. 7:00 að morgni til 1:00 eftir miðnætti. Lokunin tryggir öryggi gangandi og akandi vegfarenda á þessum fjölsóttasta hátíðardegi ársins. Gestir Menningarnætur eru hvattir til að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur til að komast á hátíðarsvæðið.

Þeim sem þurfa að koma á einkabíl er bent á að nota bílastæði við Borgartún og í Laugardalnum þar sem ókeypis skutlur aka fólki til og frá hátíðarsvæðinu frá kl. 7:00 til 00:30. Eins og lög gera ráð fyrir verður sektað fyrir ólöglegar bifreiðastöður og þeir bílar sem hindra aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs verða dregnir í burtu svo unnt sé að tryggja aðgengi þessara öryggisaðila ef óhapp ber að.

Grafískt kort sem sýnir götulokanir á Menningarnótt 2024

Kortið sýnir götulokanir á Menningarnótt. Hlekkur á það í fulli stærð er hér fyrir neðan fréttina.

Strætó 

Borga þarf almennt fargjald í strætó yfir daginn og aukin tíðni ferða verður á meðan hátíðardagskráin er í gangi.

Hægt verður að sjá biðstöðvar sem stoppað verður á í tímatöflu allra leiða á heimasíðu straeto.is.Leiðarvísirinn verður uppfærður og þannig hægt að skoða tímatöflur og ferðir yfir daginn.

Borga þarf næturgjald í næturstrætó sem tekur við um klukkan 1:00 en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.

Frítt í Strætóskutlur 

„Skutlur“ á vegum Strætó í boði Reykjavíkurborgar munu aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju milli kl. 07:30 – 00:30. Frítt verður í skutlurnar.

Rafskútur

Fólk er eindregið hvatt til að nýta sér rafskútur, sem eru vistvænn samgöngumáti, til að komast til og frá miðborginni á Menningarnótt.

Í samráði við rafskútufyrirtækin verður hámarkshraði rafskútnanna lækkaður í miðborginni á Menningarnótt, auk þess sem aðeins verður hægt að hefja og enda ferðir á ákveðnum stæðum í miðborginni.

Tæming

Leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu verður rofið kl. 22:30 og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut. Frá Sólfarinu verður ekið í öll hverfi á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 23:00- 00:30. Frítt verður í þessar ferðir.

Hægt er að nálgast kort yfir götulokanir á vefsíðu Menningarnætur, menningarnott.is, eða fá upplýsingar í símaveri Reykjavíkurborgar frá kl. 8:00 – 23:00 á Menningarnótt, sími: 411-1111.

Kort sem sýnir götulokanir á Menningarnótt.

Mannmergð í Bankastræti og Austurstræti á Menningarnótt 2023

Frá Menningarnótt 2023.