Gjaldskrár Reykjavíkur lækkaðar til að liðka fyrir kjarasamningum

Fjármál

loftmynd yfir hluta borgarinnar, Hallgrímskirkja lengst til vinstri, horft í átt að Snæfellsnesi

Gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verða lækkaðar að jafnaði um 2% frá og með fyrsta júní næstkomandi. Tillaga, sem samþykkt var í borgarstjórn, felur í sér að hækkanir um síðustu áramót eru dregnar til baka að hluta til og hækkanir viðkomandi gjaldskráa nemi almennt ekki meira en 3,5% á árinu, miðað við árið í fyrra. Aðgerðin er liður í að liðka fyrir gerð kjarasamninga.

Þann 7. mars síðastliðinn skrifaði Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, undir yfirlýsingu um stuðning ríkisstjórnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga. Til að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði munu ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga vinna að aðgerðum sem styðja við sameiginleg markmið stjórnvalda og samningsaðila um að leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Áskorun var send á sveitarfélög vegna þeirrar yfirlýsingar og er lækkun gjaldskrár meðal atriða sem þar koma fram.

Stefnan að borgin sé hagstæð fjölskyldufólki

Reykjavíkurborg lýsti yfir vilja sínum til að endurskoða gjaldskrár sínar á fundi borgarráðs þann 21. desember síðastliðinn og horfa þá sérstaklega til gjaldskrár vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur. Í tillögu borgarstjóra, sem samþykkt var í borgarstjórn í gær, kemur fram að „Reykjavíkurborg hefur um árabil tryggt fjölskyldum í borginni og barnafólki hagstæðar gjaldskrár fyrir þjónustu sína og verið í fararbroddi meðal sveitarfélaga hvað það varðar. Það er stefna borgarinnar að vera áfram hagstæðasta borg fyrir fjölskyldufólk til að búa í með hliðsjón af gjaldskrám.“

Tillagan sem samþykkt var í dag og felur í sér að gjaldskrárhækkanir þessa árs verði ekki umfram 3,5% er í samræmi við fyrrnefnda áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í meðfylgjandi gögnum koma fram upplýsingar um hverja gjaldskrártillögu, það er hver gjaldskráin verður frá og með 1. júní 2024, hver er núgildandi gjaldskrá árið 2024 til samanburðar og hve mikil hlutfallslækkun felst í tillögunni.

Tillagan og gjaldskrár 2024.