Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar 2024 – Að tilheyra - Belonging

Við Reykjavíkurtjörn. Ragnar Th. Sigurðsson
Hópur af fólki gengur meðfram Tjörninni í góðu sumarveðri

Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar verður haldið í Hinu Húsinu þann 4. maí klukkan 10:00–15:00. Þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. 

Á Fjölmenningarþingi skapast einstakt andrúmsloft fyrir fólk af öllum uppruna til að miðla og skapa þekkingu sín á milli, eiga lífleg samskipti og góðan dag saman. Leiðarljós þingsins eru samskipti, lýðræði og viðhorf. 

Sjónum verður beint að ýmsum málefnum sem eru í brennidepli svo sem tungumálum, bókmenntum, inngildingu og í fyrsta sinn verður málstofa sem er sérstaklega ætluð ungu fólki af erlendum uppruna þar sem þau geta rætt um upplifun sína í samfélaginu. 

Mikilvægt er að skrá sig á málstofurnar inni á heimasíðu Fjölmenningarþings Reykjavíkurborgar. Með því að smella á heiti málstofunnar opnast skráningarsíðan. 

Dagskrá

10:00 - Setning

10:05-11:00 – Fjölmenningarborgin Reykjavík

  • Kynning á fjölbreyttum verkefnum úr fjölmenningarborginni Reykjavík. 

11:30-12:15 - Málstofur

  • Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð?
    • Örnámskeið í fjölmenningarfærni.
  • Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu?
    • Eliza Reid, forsetafrú, stýrir málstofu þar sem Hallgrímur Helgason, Veronika Egyed og Luciano Dutra ræða mikilvægi þýðinga á bókmenntum.
  • Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi?
    • Birna Imsland fjallar um stækkandi hóp þjóðfélagsþegna sem þurfa samfélagstúlkun, hvað er vel gert og hvað má bæta í faginu.

12:15-12:45 

  • Hádegishlé. Léttar veitingar frá Á Bístró

12:45-13:30 - Málstofur

  • Opið, öruggt og kurteist samtal - spjall um fjölbreytileika og valdeflingu
    • Fyrir ungmenni af erlendum uppruna á aldrinum 13-16 ára.
  • Íslenska töluð með hreim - hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi?
    • Stefanie Bade fjallar um að tala íslensku með hreim, hvernig hreimurinn tengist sjálfsmynd fólks og fleira.
  • "Farðu bara heim til þín" samtal um menningarfordóma
    • Sema Erla Serdaroglu ræðir um menningarfordóma í alþjóðlegu og íslensku samhengi.

13:30-14:00 Kaffihlé

14:15-15:00 - Pallborð

  • Ekkert um okkur án okkar - Konur af erlendum uppruna í opinberri umræðu
    • W.O.M.E.N bjóða til pallborðs sem skipað er konum frá fjölbreyttum stigum samfélagsins. Þær munu ræða stöðu, áskoranir og tækifæri kvenna og taka við spurningum úr sal.
  • Menningarsendiherrar
    • Komdu að hitta menningarsendiherra. Mirabela Blag mun kynna störf þeirra og þær fjölmörgu áskoranir sem þau hafa tekist á við.

15:00 - Lokaatriði

Öll velkomin.