Loftslags- og lýðheilsumál verða í brennidepli í fundarröð umhverfis- og skipulagssviðs með Hjálmari Sveinssyni formanni umhverfis- og skipulagsráðs. Rætt verður um tengsl loftlagsbreytinga, lýðheilsu og hins byggða umhverfis undir fyrirsögninni Er borgin heilsusamlegur staður?. Fundurinn verður á Kjarvalsstöðum 12. nóvember kl. 20.
Skipulagsáætlanir víða um heim sem og hérlendis beina nú sjónum sínum í auknu mæli að því að draga úr og aðlagast loftlagsbreytingum, oftar en ekki með aðgerðum sem einnig hafa bein áhrif á lýðheilsu.
Gestir fundarins verða Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sálfræðingur og sviðstjóri hjá Embætti landlæknis, Guðmundur Kristján Jónsson nemi í skipulagsfræði við University of Waterloo og Halldóra Hreggviðsdóttir framkvæmdastjóri Alta ráðgjafarfyrirtækis m.a. í umhverfis- og skipulagsmálum. Þau munu setja málin í áhugavert samhengi út frá sínum sjónarhóli ásamt Hjálmari Sveinssyni.
Fundurinn verður haldinn á Kjarvalsstöðum miðvikudaginn 12. nóvember klukkan 20 og eru allir velkomnir. Glímt verður við spennandi spurningar um hvort Reykjavík sé heilsusamlegur staður og hvaða áhrif skipulag hefur á heilsufar borgarbúa, líkamlega, andlega eða félagslega? Getur hið byggða umhverfi ýtt undir lífstílstengda sjúkdóma? Hver er ábyrgð borgaryfirvalda í tengslum við lýðheilsu og loftlagsmál? Eru skipulagsmál lykillinn að bættu heilbrigðiskerfi?
Yfirskrift fundaraðarinnar er Heimkynni okkar, borgin. Hugmyndin að baki fundaraðarinnar er að setja umhverfis- og skipulagsmál í vítt og breitt samhengi. Leitað verður eftir gagnrýnni og hressilegri umræðu þar sem ólík sjónarmið og reynsluheimar mætast á málefnalegum grunni.
Þetta er annar fundurinn í röðinni, en fyrsti fundurinn var undir yfirskriftinni Hver á borgina? og var fjölsóttur og urðu líflegar umræður urðu á fundinum um deiliskipulagsmál, þéttingu byggðar og viðhald húsa.