Bílastæðasjóður hættir að prenta álagningarseðla

Bílastæðasjóður

Fyrst um sinn verða settir forprentaðir miðar undir rúðuþurrku, sem minna á þessa breytingu.
miði undir rúðuþurrku á bíl

Bílastæðasjóður Reykjavíkur hættir frá og með þriðjudeginum 7. nóvember að prenta út álagningarseðla vegna stöðvunarbrotagjalda og setja undir rúðuþurrku bifreiða. Þess í stað birtast álagningarseðlar í heimabanka umráðamanns eða eiganda bifreiðar og inn á persónulegu pósthólfi viðkomandi á Ísland.is.

Þetta á við hvort sem lagt er á aukastöðugjald vegna þess að ekki er greitt fyrir stæði eða stöðubrotsgjald fyrir að leggja ólöglega.

Þetta er eitt af fyrstu skrefunum í innleiðingu nýrrar tækni í eftirliti með stöðvun og lagningu bifreiða, auk þess sem það er umhverfisvænna að sleppa prentun. Fyrst um sinn verða settir forprentaðir miðar undir rúðuþurrku, sem minna á þessa breytingu.