Vilt þú vinna við þjóðaratkvæðagreiðsluna?
Reykjavíkurborg leitar að fólki til að taka að sér setu í undirkjörstjórnum við þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fram fara 29. ágúst. Um er að ræða tækifæri fyrir áhugasöm um framkvæmd lýðræðisins til að afla sér nýrrar reynslu í lifandi og skemmtilegu umhverfi.
Íslendingar munu kjósa um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) laugardaginn 29. ágúst næstkomandi. Í Reykjavík verða 25 kjörstaðir í öllum hverfum borgarinnar og með aðgengi fyrir öll. Þörf er á stórum hópi fólks til setu í undirkjörstjórnum.
Starf í undirkjörstjórn er þjónustustarf sem felur í sér að taka á móti kjósendum, afhenda kjörseðla og halda bókhald um fjölda og kynjaskiptingu kjósenda. Leitað er að jákvæðu, nákvæmu og þjónustulunduðu fólki sem hefur náð 18 ára aldri, á lögheimili í Reykjavík og getur talað og skilið íslensku.
Hvað færð þú fyrir þinn snúð?
Vaktin er mjög löng, hún hefst klukkan átta að morgni, kjörstöðum er lokað klukkan 22 og nauðsynlegt er að gera ráð fyrir einni til tveimur klukkustundum í viðbót við uppgjör. Ekki er í boði að taka hluta af vaktinni, nauðsynlegt er að vera á staðnum allan tímann en þú færð matar- og kaffihlé og við bjóðum upp á morgunmat, hádegismat, kaffi og kvöldmat. Launin eru 82 þúsund krónur fyrir skatt. Ef þú hefur áhuga á að vinna í kosningunum geturðu sótt um starf við þjóðaratkvæðagreiðsluna.