Vilt þú sækja um styrk hjá borginni?
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki úr borgarsjóði fyrir árið 2027.
Umsóknarfrestur er frá 1. til 30. september 2026. Gert er ráð fyrir að úthlutun styrkja verði lokið í ársbyrjun 2027.
Styrkjunum er ætlað að styðja við fjölbreytt verkefni einstaklinga og frjálsra félagasamtaka sem stuðla að farsælli þróun borgarsamfélagsins, lífsgæðum og fjölbreytilegu mannlífi.
Styrkir eru veittir til verkefna á eftirtöldum sviðum:
- Félags- og velferðarmála
- Menningarmála
Umsókn er að fullu rafræn í gegnum Mínar síður borgarinnar.
Þarftu frekari aðstoð eða upplýsingar?
Þjónustuver borgarinnar er til staðar í netspjalli, í gegnum netfangið upplysingar@reykjavik.is og í síma 411 1111.