VÆB frumflutti lag Barnamenningarhátíðar í Breiðholtsskóla
Það varð uppi fótur og fit meðal nemenda í Breiðholtsskóla í hádeginu í dag þegar VÆB, sem bræðurnir Matthías Davíð Matthíasson og Hálfdán Helgi Matthíasson skipa, mætti í skólann til að flytja lag Barnamenningarhátíðar í ár.
Sama hver það er
Börnin biðu með eftirvæntingu við inngang skólans og þegar inn var komið þustu fleiri börn að úr öllum áttum til að hitta goðin. Bræðurnir tóku börnunum fagnandi og spjölluðu við þau en fóru svo inn á sal skólans til að gera sig klára fyrir flutninginn.
Þema Barnamenningarhátíðar í ár er „samkennd og samfélag“ og fengu nemendur í 4. bekk í skólum borgarinnar það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felist í orðunum samkennd og samfélag. Bræðurnir unnu svo texta og lag, Sama hver það er, sem byggður er á svörum barnanna.
Þegar VÆB steig á svið í sal skólans ætlaði allt um koll að keyra, fagnaðarlætin ætluðu engan endi að taka. Bræðurnir fluttu lag Barnamenningarhátíðar í ár Sama hver það er og börnin tóku vel undir og klöppuðu í takt.
Þakið ætlaði bókstaflega af skólanum þegar þeir tóku svo sitt vinsæla lag Róa. Í lok tónleikanna þustu börnin upp á svið og vildu fá eiginhandaráritun frá Hálfdáni og Matthíasi.
Stemningin verður ekki síðri þegar bræðurnir í VÆB munu flytja lagið Sama hver það er fyrir fullum sal barna á opnun Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu þann 20. apríl næstkomandi. Opnunarhátíðin er í beinni útsendingu á RÚV 2 þann 20. apríl og hefst útsending klukkan 12:15.
Barnamenningarhátíð – fjölbreytt dagskrá og frítt inn
Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 20. – 26. apríl næstkomandi. Hátíðin er helguð menningu barna og á ári hverju taka hátt í 10 þúsund börn þátt í dagskrá hátíðarinnar, með einum eða öðrum hætti, um alla borg.
Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og verða fjölbreyttir viðburðir á boðstólum fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Frítt er inn á alla viðburði.
Öll velkomin!