Tvær breytingar á kjörstöðum í Breiðholti
Tvær breytingar verða á kjörstöðum í Breiðholti í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara 16. maí. Í stað Íþróttamiðstöðvarinnar í Austurbergi verður kosið í FB (Fjölbrautaskólanum í Breiðholti) og í stað Ölduselsskóla verður kosið í Seljaskóla.
Borgarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí næstkomandi og verða kjörstaðir opnir klukkan 9:00-22:00. Kjörstaðir verða 24 talsins og eru allir óbreyttir frá síðustu kosningum utan þeirra tveggja sem nefndir voru hér að ofan.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst föstudaginn 17. apríl og fer hún fram hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðasmára 1, í Kópavogi.
Ef þú ert ekki viss hvort eða hvar þú ert á kjörskrá má fletta upp eftir kennitölum á vef Þjóðskrár. Á reykjavik.is/kosningar er hægt að fletta upp kjörstöðum eftir heimilisföngum, skoða göngu- og strætóleiðir og fleira.