Stefnir í metaðsókn í Vinnuskóla Reykjavíkur
Skráningar í Vinnuskóla Reykjavíkur eru þegar orðnar 3300, núna 8. maí, en það er met á þessum tíma. Starfsfólk Vinnuskólans er um þessar mundir að raða nemendum í hópa eftir aldri og búsetu.
Almennir hópar í öllum hverfum borgarinnar
Almennir hópar í garðyrkju verða til staðar í öllum hverfum borgarinnar og er vinnu í sumar skipt niður í þrjú tímabil, það fyrsta hefst 11. júní.
Nemendum 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni. Meginhlutverk skólans er að veita nemendum uppbyggileg sumarstörf og fræðslu í öruggu starfsumhverfi.
Einnig er verið að ljúka við að ráða leiðbeinendur og annað starfsfólk en þar er um að ræða um 90 störf.
Foreldrar skrá börn sín í unglingavinnu Vinnuskólans í gegnum rafrænt skráningarform. Við hvetjum öll börn á vinnuskólaaldri til að vinna hjá borginni í sumar.