Skrifað undir samkomulag við Víking

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Björn Einarsson formaður Víkings undirrita samninginn í dag. Róbert Reynisson
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Björn Einarsson formaður Víkings sitja við borð að undirrita samning. Víkingsfáni á borðinu og á vegg á bakvið þau.

Í dag var undirritað samkomulag Reykjavíkurborgar og Knattspyrnufélagsins Víkings um yfirfærslu eignarhalds íþróttamannvirkja Víkings til Reykjavíkurborgar og tímalínu uppbyggingar á athafnasvæði félagsins.

Samningurinn var undirritaður af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra og Birni Einarssyni formanni Víkings í Víkingsheimilinu.

Samkomulagið felur í sér langtímasýn fyrir aðstöðu Víkings í Stjörnugróf og í Safamýri. Eignarhald núverandi íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland 1 færist til Reykjavíkurborgar, sem tekur þar með að sér viðhald og frekari uppbyggingu.

Samkomulag við Knattspyrnufélagið Víking

Frétt um samkomulagið