Samið við Gróðrarstöðina Mörk, Víking og Val

Gróðrarstöðin Mörk við Stjörnugróf 18 Róbert Reynisson
Gróðrarstöðin Mörk við Stjörnugróf 18

Borgarráð hefur samþykkt annars vegar samkomulag við Gróðrarstöðina Mörk, Knattspyrnufélagið Víking og Knattspyrnufélagið Val.

 

Borgarráð hefur samþykkt annars vegar samkomulag við Gróðrarstöðina Mörk sem tryggir áframhaldandi starfsemi hennar í Stjörnugróf 18 að hluta og hins vegar við Knattspyrnufélagið Víking um langtímasýn fyrir aðstöðu félagsins í Stjörnugróf og í Safamýri. Jafnframt færist eignarhald núverandi íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland 1 til Reykjavíkurborgar sem tekur þar með að sér viðhald og frekari uppbyggingu. 

Þá samþykkti borgarráð einnig samkomulag við Knattspyrnufélagið Val um að eignarhald núverandi íþróttamannvirkja félagsins færist yfir til Reykjavíkurborgar með sama hætti.

Samkomulag við Gróðrarstöðina Mörk

Forsaga málsins er samþykkt borgarráðs frá 10. júlí 2008 þess efnis að samþykkja tillögu þáverandi borgarstjóra um fyrirheit á stækkun athafnasvæðis Knattspyrnufélagsins Víkings þegar gildandi lóðarleigusamningur við Gróðrarstöðina Mörk rynni út árið 2016. Fyrirheit borgarráðs var skuldbindandi fyrir Reykjavíkurborg og veitti Knattspyrnufélaginu Víkingi forgang til að minnsta kosti hluta landsvæðis Stjörnugrófar að uppfylltum skilyrðum. 

Lóðarmynd

Samkomulag Reykjavíkurborgar og Gróðrarstöðvarinnar Markar felur í sér afnotasamning fyrirtækisins til 2050 en um leið þarf Gróðrarstöðin Mörk að skila hluta af lóðinni í tvennu lagi, fyrst í lok þessa árs og svo aftur 2032. Gróðrarstöðin Mörk heldur um það bil helmingi lóðarinnar eftir þann tíma til 2050 sem tryggir áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins.

„Þetta er dæmi um lausn sem horfir bæði til framtíðaruppbyggingar íþróttastarfs og þess að verja rótgróin fyrirtæki og störf í borginni. Við erum að skapa skýrari framtíðarsýn fyrir Safamýrina og Traðarlandið, þar sem uppbygging íþrótta- og skólasamfélags fær að vaxa áfram með hverfinu,“ segir Heiða Björg borgarstjóri.

Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir, eigendur Gróðrarstöðvarinnar Markar fagna því að loks hafi náðst niðurstaða í málinu  og að aukinn fyrirsjáanleiki sé nú kominn í stöðuna.

„Þó að niðurstaðan sé ekki sú sem við vonuðumst eftir, teljum við mikilvægt að þessu langvarandi ferli sé lokið. Ljóst er að um er að ræða verulega blóðtöku fyrir fyrirtækið. Skerðing verður á framleiðslugetu og húsnæði, auk þess sem umtalsverður kostnaður fellur til. Þar má meðal annars nefna þann kostnað sem fylgir því að færa um 200 fermetra húsnæði innan þeirrar lóðar sem við höldum eftir.

Við viljum koma á framfæri þökkum til núverandi meirihluta fyrir að hafa tekið af skarið og höggvið á þennan hnút. Jafnframt erum við þakklát borgarritara og borgarstjóra fyrir stuðninginn og fyrir að hafa staðið með okkur í gegnum þetta krefjandi ferli.

Við ætlum að horfa fram á við með bjartsýni og leggja áherslu á uppbyggingu til framtíðar. Um leið ætlum við að hætta að velta fyrir okkur hvernig borgin og Víkingur hyggjast nýta þetta svæði og beina kröftum okkar að eigin rekstri og næstu skrefum“.

Samkomulag við Knattspyrnufélagið Víking

Víkin, íþróttasvæði Knattspyrnufélagsins Víkings
Víkin, íþróttasvæði Knattspyrnufélagsins Víkings

Borgarráð samþykkti ennfremur samkomulag um eignarhald, uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland til framtíðar og uppbyggingu félagsins í Safamýri. Langtímasýn fyrir stækkun á athafnasvæði Víkings í Stjörnugróf 18 og tímalínur breytinga er rauði þráðurinn í samkomulaginu ásamt uppbyggingu í Safamýri með knatthúsi og frekari innviðauppbyggingu í þágu íþrótta- og/eða skólastarfs í hverfinu. Þá færist eignarhald allra íþróttamannvirkja í Víkings til Reykjavíkurborgar eigi síðar en í lok árs 2026.  Farið verður í aðkallandi viðhald innan- og utandyra ásamt byggingu 3. hæðar ofan á félagsheimili fyrir starfsemi félagsins sem nýtist allri starfsemi félagsins ásamt annarri uppbyggingu.

Björn Einarsson, formaður Knattspyrnufélagsins Víkings fagnar því að samningum hafi verið náð við Reykjavíkurborg um framtíðaruppbyggingu á athafnasvæðum félagsins og að málið sé loks til lykta leitt. „Samningurinn er ítarlegur og tekur fyrst og fremst mið af þörfum félagsins í heild og þörfum annarra hagsmunaaðila innan hverfa Víkings. Sú uppbygging sem kveðið er á um í samningnum er til marks um skýran metnað Víkings og borgarinnar til áframhaldandi framfara, öflugrar þróunar og árangurs á öllum sviðum félagsins til næstu ára og áratuga. Félagið færir miklar þakkir til samningateymisins og Reykjavíkurborgar fyrir samstarfið“.

Samkomulag við Knattspyrnufélagið Val

Hlíðarendi, Íþróttasvæði Knattspyrnufélagsins Vals.
Hlíðarendi, Íþróttasvæði Knattspyrnufélagsins Vals.

Þá var samið um yfirfærslu eignarhalds íþróttamannvirkja Vals til Reykjavíkurborgar. Eldra samkomulag á milli Knattspyrnufélagsins Vals, Hlíðarenda og Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í borgarráði 14. desember 2023 liggur til grundvallar samningnum sem var samþykktur í dag sem og samningsmarkmið Reykjavíkurborgar vegna yfirfærslu eignarhalds á mannvirkjum hverfisíþróttafélaga sem samþykkt voru í borgarráði 26. mars 2026. 

Með samkomulaginu hefur Reykjavíkurborg efnt að fullu ákvörðun borgarráðs frá 2023 að vinna að endurskoðun á eignarhaldi íþróttamannvirkja að Hlíðarenda með það að markmiði að Reykjavíkurborg taki yfir rekstur þeirra.

Samkomulag Reykjavíkurborgar og Gróðrarstöðvarinnar Markar 

Samkomulag við Knattspyrnufélagið Víking

Samkomulag við Knattspyrnufélagið Val