Samþykkt að hefja hönnun á nýjum skóla í Vogabyggð

Þar verður 10 deilda leikskóli ásamt grunnskóla fyrir 1.–10. bekk, íþróttamiðstöð, félagsmiðstöð, frístundaheimili og göngu- og hjólabrú yfir Ketilbjarnarsíki sem tengist Vörputorgi.
Teiknuð mynd af Skólabrú sem liggur yfir síki.

Borgarstjórn hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna hönnunar á nýju skólahúsi við Fleyvang í Vogabyggð. Skólinn mun þjóna börnum á leikskóla- og grunnskólaaldri í hverfinu og er liður í uppbyggingu þjónustu við íbúa vaxandi Vogabyggðar.

Fjölbreytt mannvirki fyrir allt hverfið

Mannvirkið verður 8.406 fermetrar að stærð og rúmar samtals 720 nemendur. Þar verður 10 deilda leikskóli ásamt grunnskóla fyrir 1.–10. bekk, íþróttamiðstöð, félagsmiðstöð, frístundaheimili og göngu- og hjólabrú yfir Ketilbjarnarsíki sem tengist stígakerfi borgarinnar. Við skólann verður einnig almenningstorgið Vörputorg.

Hönnun byggð á samkeppnistillögu

Hönnunin byggir á vinningstillögunni Skólabrú úr tveggja þrepa hönnunarsamkeppni sem lauk árið 2024 og hefur verið þróuð áfram í samstarfi hönnuða og borgarinnar. Forhönnunarfasi hófst haustið 2025.

Tímalína og kostnaður

Gert er ráð fyrir að hönnun hefjist í byrjun 2027 og ljúki árið 2029. Framkvæmdir eru síðan áætlaðar frá 2029 til 2035. Heildarkostnaðaráætlun er um 15 milljarðar króna.