Rýmin á milli bygginganna

Reykjavíkurborg leitar nú eftir áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka þátt í verkefninu Torg í biðstöðu 2026. Þemað í ár er rýmin á milli bygginganna. Mynd/Arctic Images - Ragnar Th.
Fólk á gangi, blóm og tré.

Reykjavíkurborg leitar nú eftir áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka þátt í verkefninu Torg í biðstöðu 2026. Almenningsrýmin í borginni samanstanda ekki bara af torgum og görðum. Borgin lifir líka í rýmunum inni á milli, eins og á milli húsa, við jaðra lóða, í portum, bakgörðum, gangstéttum og öðrum áhugaverðum en ekki alltaf vel skilgreindum svæðum. Í sumar leitar Reykjavíkurborg að hugmyndum sem beina sjónum okkar að þessum rýmum borgarinnar.

  • Hvernig getur líf kviknað þar sem lítið virðist um að vera?
  • Hvað gerist þegar við hægjum á okkur og skoðum rýmin sem við göngum vanalega framhjá?

Við hvetjum einstaklinga og hópa til að skapa tímabundin inngrip sem varpa ljósi á möguleika rýma sem oft eru ósýnileg í daglegu borgarlífi. Verkefnin mega vera einföld, leikandi, praktísk, ljóðræn eða tilraunakennd en þau eiga öll að opna nýja sýn á það hvernig við getum notað og upplifað borgarrýmin okkar.

  • Kannski verður til staður til að sitja þar sem enginn settist áður?
  • Kannski breytist port í samkomustað?
  • Kannski verður auður blettur að rými til að eyða tíma?

Markmiðið er ekki fullkomin lausn heldur spurning: Hvað gæti gerst hér?

Með umsókn þarf að fylgja: 

  • Ítarleg lýsing á verkefninu í texta, myndum, skissum og teikningum.
  • Verk- og tímaáætlun verkefnis.
  • Gróf kostnaðaráætlun: meðal annars efniskostnaður og laun.
  • Ferilskrá allra umsækjenda með fullu nafni, kennitölu og heimilisfangi.

Umsókn fer fram með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður. Umsóknarfrestur er út mánudaginn 20. apríl 2026.