Reykjavík með tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna

Róbert Reynisson
Tjörnin, Tjarnargatan, séð frá Þingholtum, loftmynd. Blá Tjörn í forgrunni, blár himinn í bakgrunni. Logn, heiður himinn.

Reykjavík hefur hlotið tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna, sem veitt verða í Hörpu fimmtudaginn 26. mars næstkomandi. Tilnefningarnar eru í flokknum gervigreind ársins og eru þær annars vegar vegna Notendamiðaðrar gervigreindaraðstoðar á vef og hins vegar vegna sjálfvirkrar þýðingar.

Vefverðlaunin í tuttugasta og fimmta sinn

Íslensku vefverðlaunin fara nú fram í tuttugasta og fimmta sinn og eru veitt verðlaun í sextán flokkum. Alls voru 79 veflausnir tilnefndar í ár, þar á meðal þessar tvær lausnir Reykjavíkurborgar.

Verðlaunin eru haldin á vegum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF), en það eru fagsamtök þeirra er starfa í vefmálum á Íslandi.

Samtökunum bárust 220 innsendingar veflausna í ár en auk gervigreindarflokksins sem Reykjavík er tilnefnd í, er keppt um viðurkenningar á borð við app ársins, efnis- og fréttaveitu ársins, fyrirtækjavef ársins og söluvef ársins.

Notendamiðuð gervigreindaraðstoð

Á reykjavik.is er að finna tvær lausnir sem byggja á gervigreind og hafa það markmið að stytta leiðir notenda að þjónustu og upplýsingum. Vefaðstoð (AI spjall) hefur verið í loftinu á vef Reykjavíkurborgar síðan í desember 2024 og í ágústbyrjun 2025 var svo gervigreindarsamantekt (AI samantekt) bætt við almenna leit á reykjavik.is.

Sjálfvirk þýðing

Á reykjavik.is er þýðingarkerfi knúið gervigreind sem er sjálfvirkt frá sjónarhorni þeirra sem setja inn efni. Þannig verða upplýsingar og þjónusta borgarinnar aðgengilegar á ensku fyrir íbúa sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Kerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 2020 og nær nú til nánast alls efnis á vef borgarinnar frá fréttum og þjónustusíðum til eyðublaða á Mínum síðum.

Innilegar hamingjuóskir til allra sem standa að þessum glæsilega árangri!

Teiknuð mynd. Manneskja með grænt hár og í grænum fötum situr við tölvuskjá þar sem fjallað er um þýðingar milli ensku og íslensku. Blár litur ríkjandi.