Reglum breytt um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykjavíkur

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur stýrihóps um breytingar á málsmeðferðarreglum  um veitinga- og gististaði. Meðal breytinga er að áfengisveitingar eru leyfðar í tengslum við íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Breytingar á reglunum miða að því að skýra ábyrgð og verkferla  í stjórnsýslu borgarinnar og tryggja að íbúar og rekstraraðilar hafi skýrar og aðgengilegar leiðir til að bregðast við ábendingum um hávaða, opnunartíma og notkun borgarlands. 

Breytingarnar eru eftirfarandi:

  • 1. Í 3. grein verði felld út setning um að borgarráð geti takmarkað opnunartíma veitingastaða þar sem ákvörðun um slíkt er í höndum skipulagsyfirvalda og heilbrigðiseftirlitsins. Jafnframt verði bætt inn setningu um að íbúar geti leitað til heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem fer með umhverfiseftirlit, sem nær til hávaða frá veitinga- og skemmtistöðum.
  • 2. Í 4. grein er skýrt frekar að klukkustund sem gefin er til rýmingar á veitingastöðum er tími fyrir gesti til að yfirgefa staðinn, en ekki sem viðbótaropnunartími.
  • 3. Að 9. grein um að nektarstaðir séu óheimilir verði felld brott þar sem slík  starfsemi er þegar bönnuð samkvæmt 4. grein laga númer 85/2007.
  • 4. Að bætt verði við setningu í 8. grein um að fyrir útiveitingasvæði á borgarlandi þurfi afnotasamningur að fylgja umsókn um rekstrarleyfi.
  • 5. 11. grein verði breytt á þann veg að áfengisveitingar í tengslum við íþróttaviðburði séu ekki bannaðar heldur heimilar að uppfylltum ákveðnum         skilyrðum.

Varðandi breytingu á 11. grein þá segir í umsögn stýrihóps að tillagan taki mið af þeirri þróun sem orðið hefur í framkvæmd undanfarinna ára. 

Í greinargerð hópsins segir ennfremur:

Síðustu ár hefur borgarráð fallist á að heimila áfengisveitingar í tengslum við einstaka íþróttaviðburði og þannig veitt undanþágur frá núverandi banni við áfengisveitingum í tengslum við íþróttaviðburði. Einnig eru sum íþróttafélög með varanlegt rekstrarleyfi í veislusölum sem hafa verið nýtt til sölu áfengis á íþróttaviðburðum. Þetta hefur skapað ófyrirsjáanleika og ójafnræði á veitingasölu íþróttafélaga á íþróttaviðburðum. 

Með breytingunni er markmiðið að skapa skýrt, sanngjarnt og gagnsætt regluverk þar sem gætt er meðalhófs. Jafnframt er breytingunni ætla að tryggja ábyrga, skýra og vel útfærða umgjörð um áfengissölu á íþróttaviðburðum til að verja börn og ungmenni í samræmi við forvarnarsjónarmið.

Rekstrarleyfi

Íþróttafélögum sem ekki hafa rekstrarleyfi er bent á að sækja þarf um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki 2 (umfangslitlir áfengisveitingastaðir). Sótt er um hjá Sýslumanni höfuðborgarsvæðisins.

Þegar umsóknir um rekstrarleyfi vegna veitingastaðar/gististaðar berast frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fara þær til meðferðar hjá Reykjavíkurborg sem er lögbundinn umsagnaraðili um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Nánari upplýsingar: Rekstrarleyfi veitinga- og gististaða

Fyrirspurnir og erindi vegna rekstrarleyfa veitinga- og gististaða: rekstrarleyfi@reykjavik.is

 

Nánari upplýsingar í fundargerð borgarráðs.