Borgarráð - Fundur nr. 5813

Borgarráð - Fundur nr. 5813

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 12. febrúar, var haldinn 5813. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:07. Viðstödd voru Alexandra Briem, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Kjartan Magnússon, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Hildur Björnsdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson. 
Fundarritari var Dís Sigurgeirsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki afnotasamning um götu, bílastæði og göngustíg við Neshaga 1, ásamt fylgiskjölum.

    -    Kl. 09:09 tekur Hildur Björnsdóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.

    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26020123

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ánægjulegt er að fyrirhugað sé að ráðast í löngu tímabærar viðhaldsframkvæmdir við Hagaborg. Mikilvægt er að nýta tækifærið til að gefa svæðinu á milli Fornhaga og Neshaga andlitslyftingu og ráðast einnig í löngu tímabært viðhald þar. Umrætt svæði þjónar gangandi, hjólandi og akandi umferð fyrir Hagaborg, Hagaskóla, íþróttahús Hagaskóla, Melaskóla og Neskirkju ásamt því að vera bílastæði fyrir þessar mikilvægu stofnanir. Leitast þarf við að bæta umferðaröryggi þeirra skólabarna sem eiga daglega leið um svæðið, t.d. með því að afmarka gönguleiðir betur og með lagningu sérstakrar hjólaleiðar. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa um árabil flutt tillögur um að ráðist verði í lagfæringar á illa farinni götu milli Fornhaga og Neshaga, sem og gangstéttum við Hagaborg og íþróttahús Hagaskóla sem eru einnig í mjög slæmu ástandi. Eindregið er hvatt til þess að ráðist verði í þessar sjálfsögðu og löngu tímabæru viðhaldsframkvæmdir samhliða framkvæmdum við Hagaborg.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ánægjulegt er að sjá að ráðast eigi í viðhaldsframkvæmdir á þessum stað. Framsókn hvetur til þess að reynt verði að tryggja að ekki verði lokað fyrir öll bílastæði á meðan framkvæmdum stendur. Málið verði unnið í góðu samstarfi við Neskirkju og þær stofnanir sem nýta bílastæðin.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðauka við leigusamning á atvinnuhúsnæði í Skeifunni 8, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25030012

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Kynningunni fylgja ekki upplýsingar um hvernig gagnrýni starfsfólks og notenda á þetta húsnæði hefur verið mætt. Í því ljósi situr Framsókn hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki kaupsamning um sölu á eigninni Rafstöðvarvegur 4, Toppstöðin, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26020111

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti á lóðinni Hakabryggja 12, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26020006

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkarnir eru með í sínum samstarfssáttmála að vinna aðgerðir gegn lóðabraski, meðal annars með því að taka í notkun tímabundnar uppbyggingarheimildir. Starfshópur þess efnis var settur á laggirnar í umhverfis- og skipulagsráði og mikilvægt er að fara að sjá niðurstöður þeirrar vinnu. Það er bagalegt ef íbúðarhúsnæði hækkar í verði vegna framsals lóða sem hækka stanslaust í verði. Húsnæðisuppbygging á að vera á forsendum íbúa og þeirra velferðar.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessari samþykkt meirihlutans á aðilaskiptum fylgja ekki upplýsingar um hvaða hagnað Þorpið innleysir með því að selja frá sér lóðaréttindin. Áður hefur Þorpið selt lóðaréttindi á Ártúnshöfða til sama aðila með hagnaði upp á annan milljarð samkvæmt því sem fram kemur í umfjöllun fjölmiðla. Þótt vissulega sé ánægjulegt að öflugir uppbyggingaraðilar eins og Reirverk kaupi lóðir til að byggja þá hljóta kjörnir fulltrúar að hafa áhyggjur af því að þeir sem upphaflega kaupa lóðir í útboði skuli mörgum árum síðar selja þær með milljarða hagnaði. Land er takmörkuð gæði og rétt væri að borgin tryggði hlutdeild sína í hagnaði þegar lóðir ganga kaupum og sölum. Slíkt ákvæði í uppbyggingarsamningi gæti spornað við lóðabraski og stuðlað að hraðari húsnæðisuppbyggingu.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram minnisblað mannauðs- og starfsumhverfissviðs, dags. 9. febrúar 2026, um niðurstöður meðal starfsfólks Reykjavíkurborgar úr könnuninni Stofnun ársins 2025.

    Lóa Birna Birgisdóttir og Harpa Hrund Berndsen taka sæti á fundinum undir þessum lið. MOS23020006

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 9. febrúar 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að auglýsingu um starf innri endurskoðanda, hjálögð drög að erindisbréfi um skipan ráðgefandi hæfnisnefndar vegna ráðningar í starf innri endurskoðanda auk hjálagðra draga að áætlun um ráðningarferli vegna starfs innri endurskoðanda.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS25090039
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 11. febrúar 2026:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að tekju- og eignamörk 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði verði uppfærðar til samræmis við reglugerð nr. 1342/2020 um ráðstöfun leiguíbúða skv. 37. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum. Einnig er lagt til að viðmið varðandi tekjur á ársgrundvelli í matsviðmiðum varðandi almennt félagslegt leiguhúsnæði, sbr. fylgiskjal I með reglunum, verði uppfærð til samræmis við reglugerðina. Ekki er gert ráð fyrir að tillagan feli í sér viðbótarkostnað.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Rannveig Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL26020057

    Fylgigögn

  8. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 11. febrúar 2026, um hækkun á tekju- og eignamörkum sérstaks húsnæðisstuðnings

    Lagt er til að borgarráð samþykki hækkun tekjumarka sem fram koma í 5. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning, afturvirkt frá 1. janúar 2026, sem hér segir: [sjá töflu í tillögu]. Jafnframt er lagt til að samþykkt verði að eignamörk samkvæmt 6. tl. 1. mgr. 3. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning verði hækkuð úr 8.079.000 kr. í 8.499.000 kr. og gildi afturvirkt frá 1. janúar 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Rannveig Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL26020057

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf endurskoðunarnefndar, dags. 26. janúar 2026, varðandi niðurstöður úttektar á launaferli Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.

    Ingunn Ólafsdóttir og Kristín Henley Vilhjálmsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER26010020

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 10. febrúar 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagðar tillögur stýrihóps um endurskoðun á málsmeðferðarreglum borgarráðs um veitinga- og gististaði þar sem lagðar eru til breytingar á málsmeðferðarreglunum. Tillögur stýrihópsins eru eftirfarandi: 1. Lagt er til að í 3. gr. verði felld út setning um að borgarráð geti takmarkað opnunartíma veitingastaða. Jafnframt verði bætt inn setningu um að íbúar geti leitað til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem fer með umhverfiseftirlit, sem nær til hávaða frá veitinga- og skemmtistöðum. 2. Lagt er til að í 4. gr. verði skýrt frekar að klukkustund sem gefin er til rýmingar á veitingastöðum sé tími fyrir gesti til að yfirgefa staðinn, en ekki sem viðbótaropnunartími. 3. Lagt er til að 9. gr. um að nektarstaðir séu óheimilir verði felld brott þar sem slík starfsemi er þegar bönnuð samkvæmt 4. gr. laga nr. 85/2007. 4. Lagt er til að bætt verði við setningu í 8. gr. um að fyrir útiveitingasvæði á borgarlandi þurfi afnotasamningur að fylgja umsókn um rekstrarleyfi. 5. Lagt er til að 11. gr. verði breytt á þann veg að áfengisveitingar í tengslum við íþróttaviðburði séu ekki bannaðar heldur heimilar að uppfyllum ákveðnum skilyrðum. Ítarlegri útlistun ásamt öðrum minniháttar breytingum er að finna í hjálögðum tillögum stýrihóps.

    Samþykkt og vísað til borgarstjórnar.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Eiríkur Búi Halldórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25090023

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Pírata ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga um breytingar á 11. grein málsmeðferðarreglna borgarráðs byggir á því markmiði að skapa skýrt, sanngjarnt og gagnsætt regluverk sem tryggir jafnframt ábyrga og vel útfærða umgjörð um áfengissölu á íþróttaviðburðum. Tillagan felur í sér að heimila sölu á öli og léttu víni á íþróttakappleikjum til samræmis við það sem tíðkast í öðrum löndum. Hins vegar eru sett skýr skilyrði þess efnis að verja börn og ungmenni fyrir aðgengi að þeim svæðum þar sem sala og neysla fer fram, þar með talið að sala og neysla sé óheimil á áhorfendasvæðum og stúkum. Með þessu er gætt meðalhófs um leið og gerðar eru skýrar kröfur um virkt eftirlit og ábyrga framkvæmd af hálfu íþróttahreyfingarinnar.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að áfengisveitingar verði nú heimilar á íþróttakappleikjum fullorðinna að nánar uppfylltum skilyrðum, en breytingin er í samræmi við þær tillögur sem Sjálfstæðisflokkur hefur áður lagt til. Fulltrúarnir samþykkja því tillögur stýrihópsins en leggjast þó gegn því að málsmeðferðartími verði lengdur úr þremur vikum í fjórar, enda telja fulltrúarnir almennt nauðsynlegt að hraða málsmeðferðartíma í borgarkerfinu. Undirstrika fulltrúarnir mikilvægi þess að gott samráð verði haft við íþróttafélög og veitingamenn í framhaldinu.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn samþykkir þessar breytingar en bendir á að óþarfi er að lengja afgreiðslutíma umsókna. Frekar ætti hraða afgreiðslu mála. Þá setur Framsókn þann fyrirvara við afgreiðslu málsins sem varðar áfengisveitingar í íþróttamannvirkjum að ef upp koma brot á þessum reglum þá verði ráðist í endurskoðun á regluverkinu og áfengisveitingar bannaðar aftur. Niðurstaðan byggir á trausti og mikilvægt er að íþróttafélögin standi undir því.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram fundargerð endurskoðunarnefndar frá 26. janúar 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  12. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 11. febrúar 2026.
    2. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  13. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 10 mál (MSS26010006, MSS26010013, MSS26020024, MSS26020031, MSS26020031, MSS22120087, MSS26020050, MSS26020027, MSS26020029, MSS26020028). MSS26020001

    Fylgigögn

  14. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26020002

    Fylgigögn

  15. Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir sem borist hafa borgarráði utan umsóknartíma. MSS25020031
    Frestað.

  16. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Borgarráð samþykkir að kaupa niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup fyrir Reykjavík en niðurstöður lágu fyrir á dögunum. Þjónustukönnun Gallup fyrir sveitarfélögin endurspeglar viðhorf og ánægju íbúa með þjónustu og störf síns sveitarfélags. Könnunin er framkvæmd árlega og er Reykjavíkurborg eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem ekki kaupir niðurstöðuna. Er niðurstaðan mikilvægt mælitæki fyrir starfsemi borgarinnar og gefur til kynna hvaða þættir í þjónustu borgarinnar þarfnast úrbóta að mati borgarbúa.

    Frestað. MSS26020065

  17. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Á fundi borgarráðs 30. janúar 2025 óskuðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eftir greinargerð um afdrif þeirra tillagna, sem lagðar voru fram á sameiginlegum fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna 27. febrúar 2024. Óskað var eftir því að í greinargerðinni kæmi fram með skýrum hætti með hvaða hætti viðkomandi tillögur voru afgreiddar og hvort þær hefðu komist efnislega til framkvæmdar. Á fundi borgarráðs 20. febrúar 2025, var fyrirspurninni vísað til skrifstofu borgarstjórnar. Umrædd greinargerð hefur hins vegar ekki enn borist og gera borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins alvarlega athugasemd við þau vinnubrögð. Ósk um áðurnefnda greinargerð er ítrekuð og jafnframt óskað eftir greinargerð um afdrif tillagna, sem lagðar voru fram á sameiginlegum fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna 28. janúar 2025.

    Jafnframt lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. febrúar 2026, við fyrirspurninni. MSS26020064

    Fylgigögn

  18. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 12. febrúar 2026, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um afdrif þeirra tillagna sem lagðar voru fram á sameiginlegum fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna 27. febrúar 2024, sbr. 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. janúar 2025. MSS25010215

    Fylgigögn

  19. Fram fer umræða matarinnkaup velferðarsviðs. VEL26020039

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Frá félagsmiðstöðvum velferðarsviðs berast þær fregnir að þar hafi eldri borgarar ekki fengið framreiddan mat í níu daga. Slíkt er óviðunandi og brýnt að bæta úr slíku ófremdarástandi sem fyrst. Óskað er eftir því að málið hljóti afgreiðslu sem fyrst í borgarráði.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Leitað er allra leiða til að tryggja að framleiðsla máltíða og matarþjónusta velferðarsviðs fari sem fyrst í betra horf.

    -    Kl. 11:59 víkur Líf Magneudóttir af fundi.
    -    Kl. 12:02 víkur Hildur Björnsdóttir af fundi.

  20. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 10. febrúar 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 10. febrúar 2026 á tillögu um samning um framleiðslu máltíða, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt að fresta málinu með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn einu atkvæði borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. VEL26020039

    -    Kl. 12:07 víkur Þórdís Lóa Þórhallsdóttir af fundi.

Fundi slitið kl. 12:23

Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir

Einar Þorsteinsson Kjartan Magnússon

Sanna Magdalena Mörtudottir Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 12. febrúar 2026 - Prentvæn útgáfa