Plokkum saman á sunnudaginn

Góður afrakstur plokks. Mikilvægt er að nota glæra poka. Mynd/Plokk á Íslandi
Glærir pokar fullir af rusli sem plokkarar hafa tínt upp.

Stóri plokkdagurinn verður haldinn næstkomandi sunnudag þann 26. apríl og Reykjavík ætlar að taka þátt með íbúum. Við hvetjum borgarbúa til að taka höndum saman og tína rusl í nærumhverfinu. Starfsfólk Reykjavíkurborgar verður á ferðinni á bíl til að safna saman pokum en gott er að nota ábendingavef borgarinnar til að láta vita af staðsetningum.

Pokar í sundlaugum

Hverfastöðin á Kjalarnesi tekur á móti pokum klukkan 10-16 á sunnudag. Hverfastöðin Jafnaseli verður opin klukkan 10-18 á sunnudag. Þau sem vantar poka til að tína í geta sótt þá á þessar tvær hverfastöðvar. Enn fremur verður hægt að nálgast poka í öllum sundlaugum borgarinnar frá og með morgundeginum.

Sorpa ætlar líka að taka vel á móti plokkurum á öllum endurvinnslustöðvum. Plokkarar geta losað sig við plokkið án endurgjalds dagana 26., 27. og 28. apríl. Mikilvægt er að nota glæra poka.

Skemmtilegt samfélagsverkefni

Stóri plokkdagurinn hefur verið haldinn árlega frá 2018 en hefð er fyrir því á þessum degi að til dæmis húsfélög og ýmiss konar hópar plokki saman. Markmiðið er að fegra umhverfið, draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Rótarýhreyfingin á Íslandi hefur forystu að skipulagingu dagsins, sem sameinar fólk á öllum aldri í jákvæðu og aðgengilegu umhverfisátaki.

Takk fyrir að plokka!

Stóri plokkdagurinn 2025