Parísarhjól aftur á Miðbakka

Það kemur aftur Parísarhjól á Miðbakkann. Þessi mynd er af hjólinu frá því í fyrra. Mynd/Róbert Reynisson
Parísarhjól

Parísarhjól verður sett upp þriðja sumarið í röð á Miðbakkanum í Reykjavík og verður reksturinn í höndum sama aðila og fyrr. Parísarhjólið verður opið almenningi án endurgjalds á þjóðhátíðardaginn 17. júní og einnig á Menningarnótt þann 22. ágúst.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. framlengdan samning en auglýst var 24. maí 2025 eftir samstarfsaðila til að reka parísarhjól og barst þá ein umsókn.