Nýr borgarstjóri tekinn við
Nýr borgarstjóri tók við á fundi borgarstjórnar í dag.
Hildur Björnsdóttir var kosin borgarstjóri á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag.
Björg Magnúsdóttir er forseti borgarstjórnar til eins árs. Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs til eins árs og hefur svo vistaskipti við Björgu.
Því næst var kosið í helstu ráð og nefndir sem hér segir:
- íþrótta- og tómstundaráð – Bjarni Guðjónsson, formaður
- leikskóla- og daggæsluráð – Sigrún Ásta Einarsdóttir, formaður
- mannréttindaráð – Þorvaldur Davíð Kristjánsson, formaður
- menningarráð – Rúnar Freyr Gíslason, formaður
- skóla- og frístundaráð – Bjarni Fritzson, formaður
- umhverfis- og skipulagsráð – Guðný María Jóhannsdóttir, formaður
- velferðarráð – Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, formaður
- öldungaráð – Albert Guðmundsson, formaður
Einni var kosið í önnur ráð og nefndir.
Lyklaskipti á skrifstofu borgarstjóra
Að loknu kjöri var gert hlé á fundinum. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Heiða Björg Hilmisdóttir, fráfarandi borgarstjóri, höfðu lyklaskipti á skrifstofu borgarstjóra.
Fundur borgarstjórnar hélt svo áfram að loknum lyklaskiptum.
Meðal annarra tillagna á fundi borgarstjórnar er tillaga um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, endurskoðun deiliskipulags við Suðurlandsbraut, lengri opnunartíma sundlauga, samstarf við atvinnulíf um rekstur leikskóla og daggæslu og niðurlagning stafræns ráðs. Þá verður lögð fram tillaga um að fella niður reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar.
Fylgjast má með fundinum og nálgast upplýsingar á reykjavik.is