Ný viðbygging bætir við 34 leikskólaplássum í Hulduheimum
Plássum í leikskólanum Hulduheimum í Grafarvogi hefur fjölgað um 34 með nýrri viðbyggingu sem tekin var í notkun nýverið. Þegar hafa verið tekin inn börn af biðlista í um tvo þriðju hluta nýju plássanna og verður bætt við eftir því sem aðlögun vindur fram.
Tilbúið á tæplega einu og hálfu ári
Framkvæmdir gengu samkvæmt áætlun og vel tókst að láta viðbygginguna falla að núverandi byggingu. Allar áætlanir stóðust, svæðið var girt af í kringum páskana 2025 og börnin fluttu inn í nýja húsnæðið 24. ágúst síðastliðinn og voru að sögn starfsfólks afar stolt af nýju aðstöðunni.
Með stækkuninni fjölgar börnum í leikskólanum úr 77 í 111 þegar öll pláss verða komin í notkun. Í nýju viðbyggingunni er deild elstu barna leikskólans. Þar eru fjögur aðskilin leikrými sem gefa börnunum aukin tækifæri til fjölbreyttra leikja og verkefna.
„Eitt rýmið er sérstaklega ætlað kubbaleik. Þar geta börnin unnið að stórum byggingarverkefnum án þess að þurfa að taka þau niður í lok hvers dags,“ segir Inga Birna Sigurðardóttir leikskólastjóri.
Hönnun með þarfir barnanna í fyrirrúmi
Nýja byggingin er staðsteypt og fellur vel að þeirri eldri en í henni hefur jafnframt verið hugað að ýmsum nútímalegum lausnum. Gluggar eru til dæmis staðsettir neðar en áður, þannig að börnin geti setið í gluggakistunum með bók, notið útsýnisins eða fundið sér rólegt horn til samveru og leikja.
Nýja útisvæðið við viðbygginguna hefur einnig vakið ánægju. Þar hefur verið skapað skjólgott og fjölnota svæði sem nýta á til ýmissa viðburða allt árið um kring að sögn Ingu Birnu. Hún segir að þar ætli þau að halda bæði leiksýningar og jólaböll. Svæðið verði hægt að nota allt árið, ekki bara á sumrin.
Samstarf gekk afar vel á framkvæmdatímanum
Að sögn leikskólastjóra gekk samstarfið við alla þá sem komu að verkinu, ráðgjafa, verktaka og byggingaraðila. BÓ smiðir ehf. sáu um byggingu hússins og samstarfið við þá gekk einstaklega vel og framkvæmdin hafði lítil áhrif á daglegt starf leikskólans. Svæðið var girt af og daglegt starf í leikskólanum hélt áfram samhliða framkvæmdunum við viðbygginguna.
„Það var eiginlega bara eitt skipti sem þurfti að taka rafmagnið af og þá var pöntuð pizza fyrir alla,“ segir Inga Birna og brosir.
Börnin höfðu einnig gaman af því að fylgjast með framkvæmdunum. Vinnuvélar, gröfur og önnur tæki vöktu mikla athygli og reglulega var eitthvað nýtt að sjá á byggingarsvæðinu.
Þegar framkvæmdum lauk var lóðin endurgerð og þar er allur frágangur til fyrirmyndar. Íbúar í hverfinu hafa tekið stækkuninni vel og segist Inga Birna fólk jafnvel hafa talað um að viðbyggingin falli svo vel inn í umhverfið að hún virðist hafa staðið þar frá upphafi.
„Það er líklega besta hrósið sem hægt er að fá. Húsið fellur vel að umhverfinu en veitir um leið börnunum betri aðstöðu og meira rými til leikja og náms,“ segir hún.