Leikskólinn Hulduheimar - viðbygging

Framkvæmdin felur í sér 265 fermetra viðbyggingu við leikskólann Hulduheima ásamt lóðafrágangi.
Framkvæmdatímabil er áætlað frá 2025-2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Ljósmyndir

Hvað verður gert?

Verkið felst í að steypa upp, einangra og klæða að utan alls 265m2 viðbyggingu við leikskólann Hulduheima. Lögð er áhersla á að láta nýja viðbyggingu falla vel að núverandi byggingu þannig þær myndi eina heild. Framkvæmdaáætlun miðast að því að full starfsemi verði áfram í núverandi húsnæði leikskólans á meðan framkvæmdir við viðbyggingu standa yfir. 

Verkið felst í jarðvinnu, lagningu botnlagna, uppsteypu, gluggaísetningu og fullnaðarfrágangi að utan sem innan nýrrar leikskólabyggingar sem byggð verður við núverandi leikskólabyggingu Hulduheima. Ásamt því er uppsetning allra tækni – og lagnakerfa s.s. loftræsikerfis, vatns- , og raflagna. Einnig eru lóðarframkvæmdir hluti af verkinu.

Í nýrri viðbyggingu er gert ráð fyrir 33 börnum en áætlað er að viðbyggingin sé tilbúin í apríl 2026. Í framhaldi af því tekur við lóðarfrágangur.

Hvernig gengur?

Febrúar 2026

Frágangur innanhúss er langt kominn. Verið er að ljúka við uppsetningu á kerfislofti auk þess sem verið að mála og leggja gólfefni. Þá er verið að hefjast handa við að setja upp innihurðir.

 

Janúar 2026

Verið er að ganga frá kerfisloftum, flísalögn og gólfdúkum. Unnið er að tengingu á loftræsingu og öðrum kerfum. Verið er að undirbúa uppsetningu innréttinga.

Nóvember og desember 2025

Gluggaísetningu er lokið. Verið er að ganga frá klæðningu utanhúss, búið er að setja gólfhita auk þess sem yfir stendur uppsetning grinda fyrir loftaklæðningu. Verkið er á áætlun.

 

Hver koma að verkinu?

USK umhverfis - og skipulagssvið

Skrifstofa - framkvæmda og viðhalds
Verkefnastjóri - nýbyggingar

VA - arkitektar

Umsjón og eftirlit

JTV umsjón og eftirlit

Verktaki

BÓ Smiðir ehf.

Landslagshönnun

Lagnahönnun

Burðarþolshönnun

Raflagnahönnun

Síðast uppfært 05.03.2026