Ný hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar

Hjólað í vinnuna 2026

Ný hjólreiðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030 er nánast tilbúin hjá Reykjavíkurborg. Sú áætlun byggir á reynslu síðustu ára, en setur skýrari fókus á það sem skiptir mestu máli næst. Við erum að horfa meira á gæði en áður,” sagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur þegar hún setti Hjólað í vinnuna átakið í morgun, ásamt Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra og Willum Þór Þórssyni forseta ÍSÍ. 

Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar markar skýra framtíðarsýn um borg þar sem hjólreiðar verður raunhæfur og eftirsóknarverður samgöngumáti og hluti af daglegu lífi íbúa. Stefnt er að því að gera hjólreiðar að einföldu vali í daglegum samgöngum og stuðla að bættri lýðheilsu og sjálfbærari borg. Hún tekur við af áætluninni sem gerð var fyrir árin 2021-2025. 

Markmið framtíðarsýnar 2040 

Átak eins og Hjólað í vinnuna snýst ekki bara um hreyfingu eða tímabundna áskorun heldur um að breyta venjum. Til að breyta venjum líkt og þessum er nauðsynlegt að innviðir, skipulag og menning vinni saman. Í hjólreiðaáætluninni er horft til framtíðar þar sem Reykjavík verður orðin hjólaborg á heimsmælikvarða árið 2040 þar sem hjólreiðar eru einn helsti ferðamáti borgarbúa, sérstaklega fyrir styttri ferðir,” segir Heiðar Björg. Hjólaleiðanet borgarinnar verður þá þétt, samfellt og öruggt og tengt við almenningssamgöngur og lykil áfangastaði.  

Hjólað í vinnuna 2026 var sett í Elliðaárdalnum en nefna má að nýjar brýr fyrir hjólandi og gangandi í Elliðaárdalnum stytta vegalengdir, tengja áður aðskilin svæði og gera það raunhæft að velja hjólið í stað bíls á milli hverfa. Þær styrkja tengingar austari hluta borgarinnar við miðjuna og bæta samspil við Kópavog og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. 

  • Gögn úr 24 hjólateljurum sem eru staðsettir um alla Reykjavík sýna að frá 2022 hefur verið töluverð aukning í hjólreiðum.  

  • Þá sýna tölur frá Gallup að 8% ferða til vinnu voru farnar á reiðhjóli en 14% íbúa í Reykjavík sögðust helst vilja ferðast á reiðhjóli/rafmagnshjóli til vinnu. Út frá þessum tölum voru sett markmið um hjólanotkun fyrir Framtíðarsýnina fyrir árið 2040. Þar er stefnt að því að lágmarki 50% allra ferða innan Reykjavíkurborgar verði með almenningssamgöngum og/eða virkum ferðamátum.  

  • Að lágmarki verði 35% allra ferða farnar gangandi, á reiðhjóli eða hlaupahjóli og að lágmarki 15% allra ferða farnar á reiðhjóli. 

Tökum þátt í Hjólað í vinnuna 

Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 1. - 31. maí. Hver þátttakandi getur skráð 18 daga þá hvaða 18 daga sem er.  Það er sýnilegt í borgarumhverfinu því hjólreiðafólki fjölgar verulega í maí. Reyndar er einnig hægt að ganga til og frá vinnu og skrá það. Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu og vekja í leiðinni athygli á virkum ferðamáta, en hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. 

Einnig var kynnt samstarf ÍSÍ við Gott og einfalt og Hjólavarpið kynnt. Birgir Fannar Birgisson hjá Reiðhjólabændum kynnti árvekniátakið „GUL HJÓL“, sem snýr að umferðaröryggi virkra vegfarenda. Hingað til hafa 25 gul hjól verið sett upp víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu sem áminning um mikilvægi þess að fara varlega í umferðinni, enda hafa slys á óvörðum vegfarendum verið of tíð undanfarin ár.