Niðurstöður hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög
Niðurstöður hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög voru kynntar á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs þann 16.september síðastliðinn.
Reykjavíkurborg efndi til hugmyndasamkeppni þar sem óskað var eftir áhugasömum hópum til að taka þátt í að þróa hugmyndafræði kjarnasamfélaga með því að leggja fram tillögur að úrlausn á skilgreindum lóðum.
Hvað er kjarnasamfélag?
Hugmyndin um kjarnasamfélög byggir á þeirri sýn að húsnæði þjóni ekki aðeins þörfum einstaklingsins fyrir einkarými, en sé jafnframt vettvangur félagslegra tengsla og grunnurinn að samfélagslegum innviðum borga.
Markmið samkeppninnar var að styðja við uppbyggingu húsnæðissamvinnufélaga sem leið til að efla samvinnu og þátttöku íbúa, samnýtingu og tengsl við borgarumhverfið.
- Styðja við fjölbreytileika í búsetuform í borginni
- Stuðla að nýsköpun á húsnæðismarkaði
- Vinna gegn félagslegri einangrun
Tvær lóðir stóðu til boða, önnur á Laugavegi 159 og hin í Yrsufelli 2a-2i.
Fjórir hópar í samstarfi við arkitektastofur tóku þátt. Allir hóparnir sendu inn tillögu um Laugaveg 159. Aðeins einn hópur opnaði á nánara samtal um lóðina í Yrsufelli. Hóparnir sem tóku þátt voru Miðgarður byggingarfélag, Rakettan, Búseti og Basalt saman, Stakkahlíð hses. og Kanon arkitektar saman.
Teymið Miðgarður byggingasamtök bar sigur úr býtum. Í tillögu þeirra er lögð rík áhersla á að sameina búsetu og vinnuaðstöðu fyrir íbúana á grunni jafnræðis og aðgengis innan hópsins, ásamt því að bjóða upp á þjónustu og vinnuaðstöðu fyrir nærsamfélagið.
Næstu skref:
- Deiliskipulagsvinna fyrir lóðina í samstarfi við sigurteymi
- Lóðaúthlutun mun fara fram á næstu mánuðum
- Frekari kynning á hugmyndaleit og kjarnasamfélögum verður síðar