Nágrannavarsla – aukið öryggi

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri á samráðsfundi um öryggismál í borginni í Ráðhúsi Reykjavíkur
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri á samráðsfundi um öryggismál í borginni í Ráðhúsi Reykjavíkur

Samráðsfundur um öryggi í borginni var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur síðdegis í gær. Fundurinn var vel sóttur og var farið vítt og breitt um öryggi í borginni. 

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri setti fundinn og bauð gesti velkomna. Hún sagði mikilvægt að hittast og ræða málin og heyra í íbúum um þetta mikilvæga málefni. 

Fundur um öryggismál í Ráðhúsi Reykjavíkur
Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum hjá Reykjavíkurborg fjallar um öryggi í borginni.

Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum hjá Reykjavíkurborg var með erindi um hvernig mætti komast hjá innbrotum á heimilum(linkur á glærur). Hann sagði mikilvægt að vera vel á varðbergi og  ganga tryggilega frá þegar fólk fer  til vinnu, skóla eða í frí og birti gátlista (linkur) fyrir íbúa.  

Símon Geir Geirsson lögreglufulltrúi frá samfélagslögreglu sagði frá því að þeirra hlutverk væri að fylgjast með ungmennum í borginni. Hann sagði þetta mjög mikilvægt starf þar sem unnið er að forvörnum og fræðslu í grunn- og framhaldsskólum með það að leiðarljósi að vinna að afbrotavörnum og byggja upp traust meðal barna og ungmenna.  

Á fundi um öryggi í borginni
Frá samráðsfundinum í gær frá vinstir, Símon Geir Geirsson lögreglufulltrúi hjá samfélagslögreglunni, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn og Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á funinum.

Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri, Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn fóru yfir stöðu mála vegna innbrota í borginni. Í þeirra máli kom fram að innbrotin væru almennt svokölluð tækifærisinnbrot yfirleitt framin af fólki með fíknivanda sem lögreglan þekkir til. Þeir sögðu mikilvægt að íbúar bregðist rétt við og tilkynni til lögreglu því þannig fari málin í réttan farveg og hægt að hafa upp á þeim sem voru að verki. Í máli þeirra kom fram að innbrotum hafi fækkað verulega á undanförnum vikum. 

Nágrannavarsla í forvarnarskyni

Borgarstjóri tók því næst til máls og sagði að nágrannavörsluátak væri í bígerð hjá borginni sem kynnt yrði á næstu dögum. Nágrannavarsla gangi út á það að íbúar taka höndum saman í forvarnarskyni, og er mikilvægur hlekkur í að auka öryggi í hverfunum og  fækka innbrotum.  Slíkt samstarf tengi fólk saman og myndi öruggara og ánægjulegri hverfi. 

Nágrannavarsla
Nágrannavarsla - límmiðar í glugga

Á fundinum gátu gestir fengið nágrannavörslulímmiða sem líma má innan á glugga þeirra heimila sem hafa tekið sig saman um nágrannavörslu. Límmiðana má á næstu vikum nálgast í afgreiðslu Ráðhúss Reykjavíkur eða í þjónustuveri borgarinnar í Borgartúni.  

Hildur sagði að verið væri að hanna ný nágrannavörsluskilti í stað þeirra gömlu sem enn má sjá víða í hverfum borgarinnar. Götum sem taki sig saman um nágrannavörslu muni bjóðast að panta slík skilti og fá aðstoð við uppsetningu. Hún sagði jafnframt unnið að því að efla eftirlitsmyndavélakerfið í borginni og tryggja gott áframhaldandi samstarf við lögreglu um örugga og ánægjulega borg.