Nágrannavarsla

Teikning af konu og barni á göngustíg.

Nágrannavarsla er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og íbúa og gengur út á það að íbúar taka höndum saman í forvarnaskyni.

Nágrannavarsla hefur fyrir löngu sannað sig sem mikilvægur hlekkur í að fækka innbrotum á heimili, í bíla og almennum þjófnaði á eigum fólks. Þar sem nágrannavarsla er virk hefur skemmdarverkum einnig fækkað.

Markmið nágrannavörslu

Meginmarkmið nágrannavörslu er að halda afbrotum frá viðkomandi götu/hverfi auk þess sem það tengir fólk saman og myndar þar með öruggara og ánægjulegra nágrenni.

Límmiðar á leiðinni

Víða í hverfum Reykjavíkur má sjá skilti um nágrannavörslu sem sett voru upp á sínum tíma.

 

Nú verða útbúnir miðar um nágrannavörslu sem hægt er að líma í glugga við útgöngudyr eða svaladyr.

 

Límmiðarnir verða tiltækir á völdum afgreiðslustöðum hjá borginni innan skamms.

Merki fyrir nágrannavörslu.

Góður granni - örugg borg

Í nágrannavörslu felst hlutverk íbúa í því að vera „augu og eyru“ götunnar/hverfisins. Gott er að hafa samráð við nágranna í götunni og ræða um hvernig nágrannavörslu og hvernig henni skuli háttað.

Við viljum skapa samfélag í Reykjavík sem er vingjarnlegt, áreiðanlegt og öflugt. Í nágranna Það er gott að hafa eftirfarandi í huga þegar kemur að nágrannavörslu.

Hvað felst í nágrannavörslu:

  • Að hafa auga með grunsamlegum bíla- og mannaferðum við húsin í kringum sig
  • Að passa upp á að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu
  • Setja sorp í ruslatunnur nágrannans þegar farið er í burtu í lengri tíma
  • Leggja bíl sínum í innkeyrslu nágrannans
  • Þegar snjór er yfir öllu er ráðlagt að gengið sé upp að húsi nágrannans og látið líta út sem einhver umferð sé inn í húsið

 

Loftmynd af svæðinu og nágrenni

Góð ráð

Flest innbrot eiga sér stað að nóttu til, þegar enginn er heima og nágrannar sofandi, eða yfir daginn þegar allir eru í vinnu eða skóla

  • Mikilvægt er að útidyr og bakdyr séu alltaf læstar - líka þegar einhver er heima
  • Að verðmæti liggi ekki á glámbekk og sjáist vel utan frá
  • Dæmi eru um að þjófar hafi læðst inn í anddyri húsa og tekið veski, síma eða bíllykla sem oft eru geymd í anddyri húsa
  • Nágranni geymi aukalykla
  • Góð útilýsing sem sem tengd er við hreyfiskynjara
Stórar umferðargötur í Reykjavík

Ferðalög

  • Engin verðmæti skilin eftir í bifreiðum
  • Fá nágranna sinn til að líta eftir húsinu
  • Láta viðkomandi vita hvaða einstaklingar eru líklegir til að sjást við húsið og gefa upp lýsingu og jafnvel bílnúmer viðkomandi
  • Gefa ekki upp á samfélagsmiðlum að verið sé að fara í ferðalag
""

Rétt viðbrögð

  • Inn­brots­þjóf­ur­ gæti enn ver­ið á vett­vangi. Sýndu skyn­semi, ekki fara inn í hús­ið ef þú tel­ur að ein­hver sé inni í því
  • Hringdu strax á lög­regl­una í 112 og til­kynntu inn­brot­ið. Ef þú kem­ur heim og sérð að brot­ist hef­ur ver­ið inn hjá þér er mik­il­vægt að hreyfa ekki við neinu fyrr en lög­regl­an kem­ur
  • Ef ókunn­ug­ur bíll er fyr­ir utan þá get­ur ver­ið gagn­legt að taka nið­ur bíl­núm­er­ið, til dæm­is með því að taka mynd af bíln­um
  • Samfélag þar sem nágrannar sameinast til að skapa öruggari, sterkari og virkari samfélög