Menningarnótt 2026 á næsta leiti
Reykjavíkurborg verður 240 ára þann 18. ágúst næstkomandi og haldið verður upp á afmælið á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst næstkomandi.
Menningarnótt er stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur, og verður boðið upp á ríflega 400 viðburðir á dagskránni sem íbúar, listamenn, veitinga- og verslunareigendur auk menningarstofnana bjóða upp á. Huga þarf að öryggis- og aðgangsmálum, lokunum og umhirðu borgarlandsins svo eitthvað sé nefnt.
Ætla má að um 100 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktakar hafi unnið við að koma fyrir 200 keilum, 350 mismunandi upplýsingaskiltum og 60 lokunum. Lögregla og viðbragðsaðilar munu svo sjá til þess að allt fari vel fram.
Hátíðarsvæði Menningarnætur
Í samráði við Lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu verður hluti miðborgarinnar ekki ætlaður akandi umferð til að tryggja öryggi gesta Menningarnætur.
Kort af hátíðarsvæðinu sýnir það svæði sem verður lokað fyrir akandi umferð. Engar undantekningar verða gerðar. Almennt gilda lokanir frá klukkan 07.00 að morgni laugardagsins 22. ágúst og áætlað er að miðborgin verði orðin greiðfær á ný fljótlega eftir miðnætti.
Gestir eru hvattir til að koma gangandi eða hjólandi í miðborgina.
Fyrir þau sem vilja komast beint á hátíðarsvæðið á Menningarnótt þá er tilvalið að leggja bílnum í Laugardal og í Borgartúni og taka svo ókeypis skutlu í miðborgina. Strætóskutlur aka til og frá bílastæðum við Laugardalshöll um Borgartún að Hallgrímskirkju með viðkomu á Snorrabratu frá kl. 07.30–00.00.
Allar nánari upplýsingar eru á vefsíðu menningarnætur.