Margt skemmtilegt í boði í vetrarfríinu
Vetrarfrí er að hefjast og dagana 19.-22. febrúar verður heilmargt í boði í borginni fyrir þau sem vilja gera sér glaðan dag. Frítt verður inn á söfn Reykjavíkurborgar þessa daga fyrir fullorðna sem koma í fylgd með börnum.
Borgarbókasafnið
Borgarbókasafnið býður upp á bráðskemmtilega og fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Má þar nefna stórskemmtilegt kviss, bingó, smiðjur, tónlist, ratleiki og margt, margt fleira. Svo er algjör óþarfi að fylla geymsluna af búningum því búningaskiptimarkaðir verða á hvorki meira né minna en fjórum starfsstöðvum Borgarbókasafnsins! Kynnið ykkur dagskrána og kíkið í heimsókn - ókeypis inn á alla viðburði.
Listasafn Reykjavíkur
Listasafn Reykjavíkur býður upp á spennandi og skapandi dagskrá þar sem ungir gestir fá tækifæri til að leika sér, læra og skapa í lifandi og hvetjandi umhverfi safnsins. Í Hafnarhúsi verður til dæmis hægt að kubba vélmenni innblásin af sýningunni Hraunmyndanir eða búa til blómamyndir innblásnar af verkum Katrínar Elvarsdóttur. Þá má nefna ratleik á Kjarvalsstöðum og listasafnsbingó á Ásmundarsafni, þar sem listamaðurinn Finnur Arnar hefur líka hreiðrað um sig og er að mála verk í loft kúlunnar!
Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum þessa daga.
Borgarsögusafn
Á Borgarsögusafni Reykjavíkur verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.
Á Árbæjarsafni verður hægt að föndra öll krúttlegu dýrin í sveitinni og ef til vill fara í fróðlegan ratleik um safnsvæðið. Á Ljósmyndasafni Reykjavíkur verður hægt að eiga huggulega föndurstund í skapandi skugga- og klippismiðju. Krakkar geta svo leitað uppi sinn innri víking á Landnámssýningunni í Aðalstræti, útbúið víkingaskála, -skip og -skegg og spreytt sig á rúnaratleik. Á Sjóminjasafninu í Reykjavík hafa fyndin sjávardýr falið sig á efri hæðinni, en á neðri hæðinni verður teiknismiðja þar sem litlum landkönnuðum býðst að íhuga hvað væri sniðugt að pakka í stóra ferðakistu fyrir langan leiðangur yfir hafið.
Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum þessa daga.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Í tilefni af vetrarfríi verður bætt við dagskrána í kringum dýrin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Að auki við hefðbundna dýradagskrá verður hestaþjálfun í hestagerðinu báða dagana klukkan 13 og fiktiborð í fjárhúsinu frá klukkan 10 til 11 og 14 til 15. Á borðinu verða ýmsir munir tengdir dýrunum sem gestir fá tækifæri að handfjatla og fræðast um. Þá munu gestir geta spreytt sig á ratleik í appi Húsdýragarðsins, Viskuslóð.
Garðurinn verður opinn klukkan 10 til 17 eins og aðra daga. Veitingasala Bæjarins beztu, sem er opin um helgar yfir vetrarmánuðina ætlar að hafa opið vetrarfrísdagana að auki.
Önnur dagskrá í kringum dýrin er sem hér segir:
- 10:30 Hreindýrum gefið
- 11:00 Selum gefið
- 11:30 Refum gefið
- 14:00 Umhverfisauðgun hjá dýrunum, staðsetning mismunandi milli daga.
- 15:30 Hreindýrum gefið
- 15:45 Dýrum í smádýrahúsi gefið
- 16:00 Selum gefið
- 16:30 Svínum og nautgripum gefið
Líf og fjör um alla borg
Fleira verður um að vera, svo sem í sundlaugum borgarinnar, Spennustöðinni, Frostheimum og Elliðaárstöð. Við hvetjum öll til að kynna sér dagskrána, taka þátt og njóta!