Kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks

Teiknuð mynd af Sæbrautarstokk

Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur boða til opins kynningarfundar vegna Sæbrautarstokks mánudaginn 1. júní næstkomandi kl. 17 í Vogaskóla.

Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og verður staðsettur á um það bil 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð. 

Markmið Sæbrautarstokks er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar. 

Á fundinum mun Reykjavíkurborg ásamt ráðgjöfum frá Arkís arkitektum, Landslagi og Teiknistofunni Tröð kynna þær deiliskipulagstillögur sem nú eru í auglýsingu. Þá mun Vegagerðin ásamt ráðgjöfum frá Verkís verkfræðistofu kynna framkvæmd Sæbrautarstokks auk umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmdarinnar.

Hægt er að nálgast frekari gögn um málið í skipulagsgátt.  Opið er fyrir athugasemdir til og með 24. júní.