Vel sóttur kynningarfundur um Sæbrautarstokk
Á annað hundrað manns mætti á kynningarfund um Sæbrautarstokk sem haldinn var í Vogaskóla í gær. Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur stóðu fyrir fundinum.
Fundurinn byrjaði á því að Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, fór yfir helstu atriði Samgöngusáttmálans en hann var jafnframt fundarstjóri.
Að öðru leyti var dagskrá þannig að Kristján Árni Kristjánsson, verkefnisstjóri hjá Vegagerðinni, kynnti verkefnið, Þórhildur Guðmundsdóttir, verkfræðingur hjá Verkís, kynnti helstu niðurstöður umhverfismats og loks kynntu Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís arkitektum og Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt hjá Teiknistofunni Tröð, tillögu að nýju deiliskipulagi vegna Sæbrautarstokks, auk breytinga á deiliskipulagi Vogahverfis og Vogabyggðar 2.
Góður tími gafst fyrir spurningar og svör að kynningum loknum auk þess sem fyrirlesarar og fleiri sérfræðingar í skipulagi og samgöngum stöldruðu við og spjölluðu við fundargesti að formlegri dagskrá lokinni. Upptaka af fundinum er aðgengileg á YouTube-rás Reykjavíkurborgar.
Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og verður staðsettur á um það bil eins kílómetra löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð.
Markmið Sæbrautarstokks er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar.
Hægt er að nálgast frekari gögn í Skipulagsgáttinni. Opið er fyrir athugasemdir til og með 24. júní nema umhverfismatsskýrslan er til kynningar til 29. júní.