Innköllun á súkkulaðibitaköku frá Gæðabakstri

Mynd af súkkulaðibitaköku í pakkningu

Gæðabakstur-Ömmubakstur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur ákveðið að innkalla vöruna súkkulaðibitaköku.

Ástæða innköllunar

Varan inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldinn mjólk án þess að hann komi fram á umbúðum.

Hver er hættan?

Varan getur valdið viðbrögðum hjá fólki sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir mjólk. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

Vörumerki: Gæðabakstur

Vöruheiti: Súkkulaðibitakaka

Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar frá 04.07.2026 til 14.07.2026.

Strikamerki: 5690896004098

Nettómagn: 100 g

Framleiðandi: Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík.

Dreifing

Verslanir Krónunnar um allt land og verslanir Mini Market í Hafnarfirði og Reykjavík.

Leiðbeiningar til neytenda

Neytendur sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni  til verslunarinnar. 

Fyrir nánari upplýsingar um innköllun skal hafa samband við gaedabakstur@gaedabakstur.is eða í síma 545 7000.

 

mynd af innihaldslýsingu á súkkulaðibitaköku