Innköllun á Slinmy Herbal Tea Drink
Dai Phat Trading ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Slinmy Herbal Tea Drink.
Ástæða innköllunar
Varan inniheldur óleyfilegt efni (danthron).
Hver er hættan?
Danthron er talið vera krabbameinsvaldandi.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: Slinmy
Vöruheiti: Herbal Tea Drink
Geymsluþol: Best fyrir: 02.04.2028
Strikamerki: 8854575006576
Lotunúmer: 6801
Nettómagn: 40 g
Framleiðandi: Green Tea Co., Ltd.
Framleiðsluland: Taíland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Dai Phat Trading ehf., Faxafen 14, 108 Reykjavík.
Dreifing
Dai Phat Asian Supermarket, Faxafen 14, 108 Reykjavík.
Leiðbeiningar til neytenda
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skil henni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.