Innköllun á frystum ostrum
Dai Phat Iceland ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum frystar ostrur.
Ástæða innköllunar
Nóróveira hefur greinst í vörunni.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: Surasang
Vöruheiti: Frozen oyster (I.Q.F)
Geymsluþol: Best fyrir 25.04.2027
Lotunúmer: 26.04.2025
Geymsluskilyrði: Frystivara
Nettómagn: 226 g
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Dai Phat Iceland ehf., Faxafen 14, 108 Reykjavík
Dreifing
Dai Phat Asian Supermarket, Faxafen 14, 108 Reykjavík
Leiðbeiningar til neytenda
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.