Innköllun á frosnu grænmeti

Frosið grænmeti frá Mini market

Mini Market, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum eina framleiðslulotu af frosnu grænmeti vegna aðskotahlutar (glerbrot).

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

Vörumerki: Hortex

Vöruheiti: Zupa Wiosenna 9-cio składnikowa 

Best fyrir: 02/2027

Strikamerki: 59004770009090

Nettómagn: 450 g

Framleiðsluland: Pólland 

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Mini Market, Drafnarfelli 14, 111 Reykjavík. 

Dreifing

Vörunni var dreift í Mini Market í Breiðholti og Kópavogi. Búið er að fjarlægja lotuna úr báðum verslunum.

Leiðbeiningar til neytenda

Mini market hvetur alla þá sem hafa þessa vöru undir höndum að  neyta hennar ekki heldur skila henni í næstu Minni Market verslun gegn endurgreiðslu vörunnar.