Innkalla brúna rúllutertu
Gæðabakstur-Ömmubakstur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum eina framleiðslulotu af brúnni rúllutertu vegna aðskotahlutar.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
Vörumerki: Kristjánsbakarí
Vöruheiti: Brún rúlluterta
Lotunúmer: L26.33
Strikamerki: 5690610507003
Nettómagn: 400 g
Framleiðandi: Gæðabakstur
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík
Dreifing
Vörunum er dreift um land allt, meðal annars í verslunum Krónunnar, Bónus, Nettó, Hagkaup, Prís, Fjarðarkaup, Kjörbúð og Krambúð. Búið er að fjarlægja lotuna úr öllum verslunum.
Leiðbeiningar til neytenda
Gæðabakstur-Ömmubakstur hvetur alla þá sem hafa þessa vöru undir höndum að neyta hennar ekki heldur skila henni í næstu verslun gegn endurgreiðslu vörunnar eða til Gæðabaksturs að Lynghálsi 7, 110 Reykjavík.