Innkalla brúna rúllutertu

Brún rúlluterta

Gæðabakstur-Ömmubakstur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum eina framleiðslulotu af brúnni rúllutertu vegna aðskotahlutar. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við 

Vörumerki: Kristjánsbakarí 

Vöruheiti: Brún rúlluterta 

Lotunúmer: L26.33 

Strikamerki: 5690610507003 

Nettómagn: 400 g 

Framleiðandi: Gæðabakstur 

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru 

Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík 

Dreifing 

Vörunum er dreift um land allt, meðal annars í verslunum Krónunnar, Bónus, Nettó, Hagkaup, Prís, Fjarðarkaup, Kjörbúð og Krambúð. Búið er að fjarlægja lotuna úr öllum verslunum. 

Leiðbeiningar til neytenda 

Gæðabakstur-Ömmubakstur hvetur alla þá sem hafa þessa vöru undir höndum að  neyta hennar ekki heldur skila henni í næstu verslun gegn endurgreiðslu vörunnar eða til Gæðabaksturs að Lynghálsi 7, 110 Reykjavík.