Hverfissjóður Reykjavíkurborgar 2026 – vilt þú sækja um?

Gleði á Austurvelli með tröllinu Tufta

Opnað verður fyrir umsóknir í hverfissjóð Reykjavíkurborgar sunnudaginn 15. mars og er umsóknarfresturinn til 15. apríl næstkomandi.

Tilgangur hverfissjóðs er að efla félagsauð, samstöðu og samvinnu íbúa í hverfum borgarinnar, stuðla að fegrun hverfa, auka öryggi og auðga mannlíf með fjölbreyttum hætti með mið af þörfum íbúa.

Sjóðurinn styrkir þau sem vilja leggja sitt af mörkum og standa fyrir hverfistengdum verkefnum og/eða viðburðum. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni sem nýtast sem flestum íbúum hverfanna, stuðla að þátttöku fjölbreyttra hópa í mannlífi þeirra eða miða að fegrun eða uppbyggingu svæða sem nýtast stórum hluta íbúa.

Við mat á umsóknum eru úthlutunarreglur Hverfissjóðs, styrkjareglur Reykjavíkurborgar sem og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar hafðar til hliðsjónar. Rétt er að taka það fram að viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á.