Húsverndarsjóður opinn fyrir umsóknir
Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum. Opið er fyrir umsóknir frá og með deginum í dag, 17. febrúar, til og með 9. mars 2026.
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:
- Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
- Tímaáætlun.
- Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða marga þætti).
- Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.
Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum klukkan 15-17 í síma 411 6333. Einnig má senda tölvupóst á husverndarstofa@reykjavik.is.
Umsóknir eru eingöngu mótteknar á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á Mínum síðum á vef Reykjavíkurborgar.
Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað verður 2026 og verða ekki nýttir fyrir lok árs 2027 falla niður.